Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 21

Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 21
KIRKJURITIÐ 2(^3 Þetta er sigursöngur páskanna — hinn eilífi sigursöngur kristinna kynslóða, seni koma og fara „yfir brúna“. Mikilmenni. Þrátt fyrir allar kynþáttaofsóknir og lítilsvirðingu ófárra á einstaklingunum, er víða vaxandi skilningur á því, að maður- mn sjálfur er gullið, hvernig svo sem umbúðirnar eru, þ. e. hvernig sem liann er á litinn eða við hvaða kjör sem haun á að búa. Sönnun þess er m. a. sú, að nú er fyrst í ráði að svert- ingi verði ráðherra í Bandaríkjunum og að blökkumaðurinn Albert Luthuli fékk friðarverðlaun Nóbels (fyrir árið 1960) á síðast liðnu liausti. Hann er heimskunnur maður áður, höfuð- foringi þjóðfrelsismanna í Suður-Afríku. Ljóngáfaður, stór- huga, víðsýnn og hetjulundaður. Stefna hans liefur verið: jafn- rétti en ekki hefnd. Samstaða hvítra manna og svartra. Þegar arið 1957 hneppti ríkisstjórn — öllu heldur ofríkisstjórn — Suður-Afríku hann í fangelsi ásamt um 900 öðrum stjórnmála- mönnum og blaðamönnum af svertingjakynstofni. Undanfarin :>r liefur Luthuli samt hlotið þá ,,náð“ að vera einangraður á smábúgarði, sem hann á. Ekki sá stjórnin sér, eftir nákvæma yfirvegun, fært að banna honum að fara til Osló og taka við friðarverðlaununum í haust. En frelsi Jiefur liann ekki fengið heima fyrir. Þeini, sem kynntust lionum í Evrópuferð lians, fannst mikið HJ um liann. öivind Berggrav, ritstjóri Kirke og kultur, skrifar um hann á þessa lund: „Mér fannst ég lifa sögufræga stund undir ræðu Alberts Luthuli, jafnvel tímamót. Hér birtist þessi ávöxtur liins kristna trúboðs sem endurlieimtur trúboði manngildisins. Nóbelsverð- hiunanefndin liafði talið liann verðugastan hinnar miklu sæmd- ar af öllum þeim skara, sem leggja fram Jið sitt til þjónustu mannkvnsins. Þennan mann, sem lians eigin stjórn taldi ekki euiu sinni verðan fullra mannréttinda. Það var gífurlega grát- leg aðstaða, sem liafði yfirþyrmandi álirif . .. Hvað greip oss slíkum töfratökum? Hann átti raunar vísa samúð fyrir fram. En það var eittlivað 1 fari lians, sem lireif mann. Vera má að unnt sé að fela það í tveim orðum: myndugleika mannkærleikans“.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.