Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 14

Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 14
156 KIRKJURITIÐ né heldur má á sama standa livernig eru að öllum frágangi og útliti. Einnig ber kirkjunni siðferðileg skylda að sjá til þess, að slíkar bækur séu jafnan fyrir bendi og útgáfur þeirra ekki ofurseldar dutlungum eða gróðafíkn einstakra útgefenda. Þessar bækur eru meðal annars Sálmabók þjóðkirkjunnar, Passíusálmarnir, Messusöngsbækur og Handbók presta. Ýmis fleiri rit gætu og komið þar til greina, er kirkjan ætti að tryggja sér einkaútgáfurétt að. Ennfremur væri lieppilegt að fram færi ítarleg athugun á því, livort ekki kynni að reynast heppilegt að slíkt félag tæki að sér útgáfu Biblíunnar og Nýja testament- isins og annaðist sölu þeirra í samvinnu við Hið ísl. Biblíufélag og með styrk frá því. tJtgáfa slíkra bóka ætti að geta orðið félaginu nokkur tekjulind, ef rétt er á haldið, þó að sjálfsögðu beri að stilla verði þessara bóka mjög við hóf. I þessu sambandi er og vert að atliuga það, sem raunar er ekki ný bugmynd, að kirkjan eða væntanlegt bókmenntafélag hennar atbugi vandlega, bvort ekki mundi reynast bagkvæmt, sambliða vaxandi útgáfustarfi, að eignast bæfilega prentsmiðju eða eignast hlut í benni með öðrum. Er sennilegt, að slíkt gæti að því stuðlað, að gera útgáfuna bæði ódýrari og vandaðri. Ég bef bér að framan lauslega bent á þörfina á því, að kirkjan hefjist banda um útgáfu og rannsókn á sinni eigin sögu og tæki jafnframt í sínar hendur útgáfu þeirra bóka, er starf hennar einkum varðar á hverjum tíma. Auk þess að vera nauðsyn, ætti kirkjunni einnig að vera þetta nokkurt metn- aðarmál. Ég bef ennfremur bent á leiðir til þess, að þetta starf megi verða benni kleift fjárhagslega. Eftir er þá að sjá bvern skilning og áhuga forráðamenn kirkjunnar og presta- stéttin vill sýna þessu máli. Undir því er og verður að sjálf- sögðu framkvæmd þess komin. Sá, sem kemur sér í mjúkinn hjá öllum er einskis vinur. -— Kristina. Menn eru ekki ánægðir með að vera það, sem þeir eru. Þeir vilja vera liitt, sem þeir ímynda sér að þeir liefðu getað orðið. — Hjalmar Söderbcrg Skynsemin á að vísu sóknarvopn i baráttunni við heiniskuna, en engan varnarskjöld. — Gustaf Lindberg.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.