Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 13

Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 13
KIRKJURITIÐ 155 Ég kem þar einkum auga á fjórar leiðir, en fleiri kunna þó til að vera. 1. Árlegt framlag úr PrestakallasjóSi. Þessi sjóður er nú orðinn allstór á íslenzkan mælikvarða. Árlegar tekjur hans vegna óveittra prestakalla nema að ég hygg 150—250 þúsund- um á ári og stundum meira. Hann er undir stjórn Kirkjuráðs. Fae ég ekki séð, að nein lagaákvæði séu því til fyrirstöðu, að stjórn sjóðsins veitti kirkjulegu bókmenntafélagi ríflegan styrk árlega til starfsemi sinnar. 2. SjóSur Strandarkirkju. Strandarkirkja er, eins og kunn- ngt er, langsamlega auðugasta kirkja landsins. Sjóður hennar skiptir milljónum króna. Árleg áheit og vextir höfuðstólsins er nokkur hundruð þúsund og fara sívaxandi. Það hefur löngu verið viðurkennt, bæði í orði og verki og í lögum, að nokkru öðru máli gegni um þetta fé en aðrar eignir einstakra kirkna, enda tekjur liennar ekki framlög safnaðarins, heldur þjóðar- innar. Ég fæ því ekki séð, að það væri neiri goðgá að taka til alvarlegrar yfirvegunar, hvort ekki væri bæði heppilegt og skynsamlegt að koma því til vegar, að einhverjum hluta þessa fjár yrði varið til útgáfustarfsemi kirkjunnar íslenzku, annað livort sem beinum styrk eða vaxtalausu framlagi. Til þessa inundi þurfa sérstaka löggjöf, en ætti eigi að síður engan veg- inn að vera óframkvæmanlegt. Á þennan liátt mundi þetta fé verða til þess að auka kirkjulega menningu í landinu, og væri það vel. Kynni og svo að fara, að eitthvað af þeirri giftu °g heill, sem fylgt liefur þessari litlu kirkju um aldir og þjóðin befur svo mjög trúað á, kynni einnig að verða máttugt í starfi hins kirkjulega bókmenntafélags, þjóð og kirkju til blessunar. 3. Arlegur opinber styrkur. Ég tel það ekki efamál, að ríkið, sem samkvæmt stjórnarskránni á að vernda þjóðkirkjuna, niundi fúst til þess að veita svona félagi árlegan styrk til starf- semi sinnar, svo sem það þegar gerir til eflingar annarra félaga, er vinna að útgáfu og rannsóknum sögulegra fræða. 4. Vœntanlegar tekjur af annarri útgáfustarfsemi. Eins og kunnugt er, eru bér á landi gefnar út allmargar bækur varðandi kirkju og guðsþjónustuhald, sem algjörlega °rugglega seljast í stórum upplögum og eru auk þess svo ná- tengdar kirkjunni, að henni getur engan veginn á sama staðið

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.