Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1962, Qupperneq 34

Kirkjuritið - 01.04.1962, Qupperneq 34
176 KIRKJURITIB kristna trú o» menning eru slíkar andstæður, sem nú liefur verið drepið á og reynslan hefur sýnt, þá er auðsætt, að hverju kristnu þjóðfélagi og yfirleitt hverju vestrænu menningar- og lýðræðisríki hlýtur að vera ]>að áhugamál, að vernda þau and- legu verðmæti, sem eru í hættu vegna efnishyggjunnar, vernda þjóðskipulag sitt, vernda mannréttindi þegnanna og þau önnur andleg gæði, frelsi og manndyggðir, sem viðurkennd eru að mesta gildi í slíkum þjóðfélögum. Að vísu ber því miður að játa, að í voru þjóðfélagi eins og í öðrum kristnum þjóðfélögum á sér margt stað, sem er í algjöru ósamræmi við kristindóm- inn. Ástæðan er ekki eingöngu, að vér erum allir ófullkomnir, heldur einnig sú, að svo nefnd kristin þjóðfélög eru sambland af trúuðum kristnum mönnum og vantrúuðum, og þjóðfélag vort er ekki undantekning. Kristin ríki eru rnörg, ef til vill flest ekki nema að nokkru leyti kristin. Þau eru líka mörg meinin í ])jóðlífinu, sem valda áhyggjum, bæði í lífi æskunnar og liinna fullorðnu, sem ekki ber eins mikið á, en eiga þó mesta sökina, og það mun almennt álit, að taka verði þessi mál sterkum tökum. 1 allri þeirri baráttu, sem iiér befur verið gjörð að umtals- efni, á ríkið ekki minna á bættu en kirkjan, nema frekar sé. Það má kveða svo að orði, að vort kristna lýðræðisríki sé í lífshættu. Ef kristin ríkisstjórn lætur sitt eftir liggja og gjörir ekki skyldu sína í þessum efnum, lilýtur ástæðan að vera sú, að hún gjörir sér ekki grein fyrir bættunni og livar hún er fólgin, eða að önnur sjónarmið skyggja á eða eru meira metin. Þar sem gjöra verður ráð fyrir því og því verður að treysta, að stjórnarvöld vor á hverjum tíma séu andstæð efnishyggju en talsmenn og verjendur vorrar kristnu menningar, þá er ætlazt til, að þau láti mál þessi til sín taka sérstaklega og meti að verðleikum og taki fegins hendi allri þeirri aðstoð, sem stendur til hoða í þessum efnum. Öllum kristnum almenn- ingi er það ljóst, að þjóðfélag vort, sem í þessu sambandi verður ekki greint frá ríkinu, Jiarfnast sterkrar aðstoðar til þess að vernda trú sína og siðgæði, helg réttindi sín og meira að segja sitt andlega líf. Af öllu þessu er ljóst, að kristnu ríkisvaldi hlýtur að vera umhugað um, að til sé í þjóðfélaginu starfandi afl eða öfl, sem efla og vernda siðgæðið, efla með þjóðinni og vernda

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.