Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 40
KRISTNIR ÁHRIFAMENN
Robert Merril Bartlett:
„Opinn faðmur...“
(Dominique Georges Pire)
CJEINT á næstliðnu sumri vígðu þeir Dominique Georges Pire
k-' og K. Ramachandra frá Ceylon, fornvinur og lærisveinn
Gandhis, alþjóðlegt æskulýðsheimili, sem hinn fyrrnefndi dom-
inikanski prestur og Nóbelsverðlaunahafi hafði kornið á fót
í smábænum Huy í Belgíu. Þarna voru viðstaddir stúdentar
frá 15 þjóðum, og játuðu þeir fjögur heimstrúarbrögð. 1 ræðu
sinni um þetta heimili, sem lielgað var allsherjarbræðralagi
mannanna, komst faðir Pire svo að orði: „Mannkynið er allt
ein fjölskylda. Og allir meðlimir þessarar fjölskyldu eiga sömu
jafnvirðingarkröfuna hvað sem líður þjóðerni þeirra, tungu,
trú, litarhætti, þjóðfélagsstöðu, menntun eða stjórnmálaskoð-
unum“.
Hann viðurkenndi, að það væri hverju orði sannara, „að
oss skildi margt á, en oss yrði að lærast að taka tilhlýðilegt
tillit til þess. Samræðufundir á þessu æskulýðsheimili eiga að
stuðla að því, Þar er lögð megináherzla á almennan skilning
ummælanna. Orð eins og frelsi og lýðræði verða að tákna liið
sama í allra eyrum. Og menn verða að vera hreinskilnir,
hafna öllurn hlekkingum í hvaða mynd sent er, berjast gegn
fyrirfram ákveðnum hlevpidómum og afneita sérgæzkunni,
því að „sérgæðingurinn er afleitur reikningsmeistari“. Annað
höfuðskilyrði þess að umræðurnar verði áhrifaríkar er, að
unnið sé að sameiginlegum verkefnum, bundist samhuga sam-
tökum um málefni mannlegrar þjónustu og friðinum til efl-
ingar. Friðurinn er annað og meira en hrein hugsjón, hann er