Kirkjuritið - 01.07.1962, Síða 3
Sigurður Einarsson í Holti:
Kvöldkugleiðing
í Holti
í myrkrum aldanna,
í myrkrum sálnanna
vakir vonarstjarna
að veðrabaki
og skrugguskýja.
Þar eygjum vér árdag
og öld nýja
Fyrir guðs náð.
Myrkheimur aldanna,
myrkheimur sálnanna
brimar sem vetrarsær
í brjóstum vorum
af heift og harmþunga.
— Því erum vér bundinfótur,
bundinhönd
og bundintunga.
í synd.
Fótur þráir frelsi,
hönd svíður helsi,
kirkjukórsöngur —-
hugur á sér vængi
og sál vor föðurland
í útlegð einmanans,
allra vor á jörðu
með vegleysu frá
manni til manns.
— En mannssonurinn, Jc
gekk þrautasporin hörðu
og bar þyrnikrans.
Fyrir oss.
Eitt gerði Jesús mér.
Eitt mun hann gera þér:
Finna þig villtan
og fyrirgefa þér,
segja þig sælan
signa þig hólpinn,
svifta af þér okinu þunga,
bundinfótur,
bundinhönd
bundintunga. —
Síðan ertu frjálsfótur,
frjálshönd
og fagnandi tunga.
Fyrir guðs náð.