Kirkjuritið - 01.07.1962, Blaðsíða 9
KIRKJURITIÐ
295
dyggur sonur kirkjunnar og tókst fúslega á hendur ábyrgðar-
störf fyrir liana. Hann var um áratugi í sóknarnefnd Dómkirkj-
unnar og sat í Kirkjuráði fyrsta kjörtímabil þess.
Ingibjörp Ólafsson lézt 6. þ. m. á Englandi þar sem bún liafði
verið búsett um langt skeið undanfarið. Hún vann ævistarf sitt
að mestu leyti erlendis, en það var merkilegt og margþætt, og
Islandi til álitsauka. Merki þess er m. a. sá minningarsjóður,
sem vinur liennar, Despina Karadja, prinsessa, liefur stofnað í
virðingar- og þakkarskyni fyrir störf liennar og til styrktar
kristnum málefnum hér á landi. Ingibjörg var heiðursfélagi
Hins ísl. Biblíufélags, enda mikill velunnari þess og fulltrúi á
erlendum vettvangi.
Þessum látnu mönnum vottum vér virðingu og þakkir kirkju
vorrar og rísum úr sætum.
Nýir menn í prestastétt
Þrír ungir menn hafa tekið prestsvígslu á árinu.
Þórarinn Þórarinsson vígðist 25. júní, settur prestur í Vatns-
endaprestakalli í S.-Þingeyjarprófastsdæmi. Hann er f. 14. juni
1932 að Krossdal í Kelduliverfi, sonur hjónanna Þórarins bónda
uð Krossdal Jóliannessonar og Ingveldar Guðnýjar Þórarins-
dóttur. Hann lauk stúdentsprófi 1952 og embættisprófi í guð-
fræði frá Háskóla íslands 1960. Hann er kvæntur Guðrúnu
Þórðardóttur.
Árni Pálsson var vígður 20. ágúst, skipaður prestur í Mikla-
holtsprestakalli í Snæfellsnessprófastsdæmi að undangenginni
lögmætri kosningu. Sr. Árni er f. 9. júní 1927 að Stóra-Hrauni
á Snæfellsnesi, sonur hjónanna Páls verkstjóra Þorbergssonar
og Önnu Árnadóttur. Hann lauk stúdentsprófi 1948 og emb-
ættisprófi í guðfræði frá Háskóla Islands 1954. Ivona hans er
Rósa Björk Þorbjarnardóttir.
Sigurpáll Óskarsson vígðist 8. okt., settur prestur í Bíldu-
dalsprestakalli í Barðastrandarprófastsdæmi. Ilann er f. 19.
febr. 1931 að Klömbrum í Aðaldal, sonur hjónanna Oskars
Jónssonar, hónda þar, og Hildar Baldvinsdóttur. Hann lauk
stúdentsprófi 1955 og embættisprófi í guðfræði frá Háskóla
Islands 1961. Hann er kvæntur Guðrúnu Vilhjálmsdóttur.
Ég fagna þessurn nýju starfsmönnum í prestastétt og bið þeim
blcssunar drottins.