Kirkjuritið - 01.07.1962, Side 11
KIRKJURITIÐ
297
niunu söfnuðir lians o<r kirkja sakna hans, er liann nú lætur af
störfum. Ég þakka fyrir kirkjunnar hönd og hið lionuin bless-
unar.
Framhald þjónusfu
Séra Sigurður Ó. Lárusson, prestur í Stykkishólmi og pró-
fastur í Snæfellsnessprófastsdæmi, varð sjötugur 21. apríl s. 1.
Samkvæmt einróma ósk allra atkvæðisbærra manna í presta-
kallinu hefur kirkjustjórnin veitt samþykki sitt til þess að
kann gegni embætti áfram enn um sinn, þrált fyrir það þótt
hann liafi náð lögmæltum hámarksaldri embættismanna. Ég
fagna því að hann fær enn að auka nokkru við 42ja ára far-
Sæhi þjónustu sína.
Guðfrœðipróf
Þrír menn luku guðfræðiprófi frá Háskóla íslands, Auður
Eir Vilhjálmsdóttir í janúar og nú í vor Ingólfur Guðmunds-
son og Bernharður Guðmundsson.
Þjónusta fyrrverandi sóknarpresta
Tveir prestar, er látið hafa af cmhætti, liafa um tíma ])jón-
að prestaköllum í veikindaforföllum sóknarprestanna. Það eru
þeir sr. Björn O. Björnsson, er þjónaði Möðruvallaprestakalli
1 nokkra mánuði frá 15. des. að telja, og sr. Halldór Kolhcins,
er þjónað hefur Nesprestakalli í Norðfirði frá 1. maí s. 1.
Kirkjuvígslur
Fimm kirkjur voru vígðar á árinu, þar af 2 endurvígðar
eflir umbætur. Að Eyvindarliólum var vígð nýreist og vegleg
hirkja 23. júlí. Efra-Núpskirkja var vígð 20. ágúst. Sú kirkja
er einnig ný, smekkleg og vönduð. Hana vígði vígslubiskup
Hólastiftis. Selárdalskirkj a var smíðuð upp í fyrrasumar og
þó látin lialda fvrri svip sínum að öllu leyli. Hún var endur-
vígð 24. sept. og aldarafmælis liennar minnzt um leið. Torfa-
gtaðakirkja var vígð að nýju 22. okt., en hún hafði verið um-
hætt og stækkuð. Þá var 25. marz vígður liluti af safnaðar-
leunili Langholtssóknar í Reykjavík og liefur sá söfnuður nú
nieð ágætri forsjá og atorku leyst húsnæðismál sín í bili á
heppilegan liátt.