Kirkjuritið - 01.07.1962, Side 13

Kirkjuritið - 01.07.1962, Side 13
KIRKJURITIÐ 299 ekki komnar út á prenti í lieild, en margt liefur þegar verið ritað um það, sem þar fór fram. Ivjörorð þingsins var: „Jesús Kristur — 1 jós lieimsins“. Mátti svo lieita að fulltrúar gjör- vallrar kristni kæmu þarna saman í hinni indversku liöfuð- horg, enda er nú svo koniið, að kristnin öll að kalla liefur bundizt tengslum með formlegri aðild að Alkirkjuráðinu (World Council of Churches), sem er kjörin stjórnarnefnd þessara samtaka. Enn er þó rómversk-kaþólska kirkjan utan við, því að liún neitar enn sem áður að ganga til slíks samstarfs við aðrar kirkjudeildir á grundvelli jafngildis. Á þinginu í Nýju Dellii átti liún þó opinbera áheyrnargesti og er það í fyrsta sinn sem slíkt liefur gerzt. Það, sem miðað befur áleiðis í raunliæfu, alþjóðlegu sam- starfi kristinna manna af öllum Jijóðum og kirkjugreinum síð- an er fyrstu, skipulegu tilraunirnar í þá átt liófust — og síðan er ekki liðin liálf öld — er sannast að segja athyglisverl og stórvægilegt, Jiegar á allt er litið af raunsæi. Framlag tveggja kynslóða kristinna forgöngumanna í liugsun og starfi á þess- inn vettvangi Jiolir að minni ætlan samanburð við mestu afrek sögunnar í samtíð og fortíð. Og Jiað verk, sem unnið liefur ver- 'ð á undanförnum árum undir forustu Alkirkjuráðsins og undirdeilda Jiess á sviði mannúðar- og líknarmála, verður óvé- fengjanlega flokkað með gleðilegustu staðreyndum Jiessarar aldar. Þrennt gerðist á þinginu í Nýju Dellii, sem einkum hefur þótt tíðindum sæta: 1. Sameining alþjóðlega kristniboðsráðsins og Alkirkjuráðs- uis í eitt. Yar Jiað skref vandlega rætt og undirbúið árum sam- an, en það miðar mjög að aukinni samstillingu kraftanna og markvísari heildarstefnu í kristniboðsmálum. 2. Rússneska kirkjan gerðist aðili að Alkirkjuráðinu. Syst- urkirkjur liennar, hinar grísk-orþodoxu kirkjur, hafa annars niargar hverjar verið mjög virkir Jiátttakendur í Iiinum sam- kristnu alþjóðasamtökum, en rússneska kirkjan hefur, sakir vtri aðstæðna, verið utan Jieirra, og 1948, Jiegar Alkirkjuráðið var formlega stofnað, bafnaði liún tilboði um aðild með pólitískum rökum, sem raunar voru staðhæfingar einar. Hef- ur hún vafalaust um Jiað orðið að lúta öðrum vilja en sínum

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.