Kirkjuritið - 01.07.1962, Síða 14
300
KIRKJURITIÐ
eigin. Nú sótti hún liins vegar um inngöngu og ásamt lienni
systurkirkjur hennar í Búlgaríu, Rúmeníu og Póllandi.
3. Játningargrundvöllur Alkirkjuráðsins var nokkru skýrar
markaður en áður í því skyni að árétta hina almennu kristnu
samstöðu um Heilaga Ritningu sem viðmiðun og um trúna á
hinn þríeina Guð. Þessi grundvallargrein liljóðar nú á þessa
leið:
„Alkirkjuráðið er samfélag kirkna, sem játa Drottin Jesúm
sem Guð og frelsara í samræmi við Heilaga Ritningu, og leit-
ast þess vegna við liver með annarri að gegna sameiginlegri
köllun til dýrðar einum Guði, föður og syni og heilögum anda“.
1 sambandi við þingið bættust 23 kirkjur við í þessi al-
heimssamtök, þar af 11 frá Afríku og 4 frá Asíu. Eru nú 198
sjálfstæðar kirkjur aðilar að Alkirkjuráðinu. Kristin kirkja er
ekki lengur livítra manna stofnun eða sérmál, liinar ungu
kirkjur Asíu og Afríku láta æ meira til sín taka á alþjóðavett-
vangi. Nigeríumaður og Indverji eru meðal sex forseta ráðsins.
í þessu sambandi má gjarnan rifja það upp, að á síðasta
ári Iilaut kristinn svertingi frá Suður-Afríku friðarverðlaun
Nóhels, Alhert Lútúli. 1 ræðunni, sem hann flutti í Oslo við
það tækifæri bar liann kristniboðinu fagurt og máttugt vitni.
Það var „Ijósgeislinn í myrkri“ liðinna tíma og því er það að
þakka, að nú tekur að daga í Afríku, þrátt fyrir allt. Haim
nefndi nöfn kristniboða, sem hörðust lietjulegri haráttu fyrir
mannúð og mannréttindum gegn skilningsleysi evrópskra ný-
lendustjórna og ofurefli hvítrar auðshyggju. Og hann flutti Al-
kirkjuráðinu skorinorðar þakkir fyrir þá forustu, sem það
hefur tekið um stuðning við þeldökka menn í landi lians,
Suður-Afríku.
Það gerist kirkjusaga í samtíðinni. Gott og nauðsynlegt er
það að kunna sína skólasögu og vita skil á því, sem er liðið.
En kirkjan er ekki liðin saga, annáll liennar liefur ekki verið
skráður til loka. Engin kirkja nokkurs lands og enginn krist-
inn einstaklingur má við því að gefa ekki gaum að lífi og
starfi þeirrar stóru heildar, sem þrátt fyrir marggreindan feril
og þróun, mótun og viðliorf, er eitt í rót, í Jesú Kristi.
Einhver hefur sagt, þegar rætt var um undirbúning guð-
fræðinga undir prestsstarf, að liáskólakandidat í guðfræði viti
meira um innréttingu og daglega háttu í jniðaldaklaustri eit