Kirkjuritið - 01.07.1962, Page 21
KIRKJURITIÐ
307
fram undanfarin ár, lokaskref í tvennum skilningi. 1 fyrsta
Jagi er nú því marki náð að flytja útgáfu Biblíunnar inn í
landið, vér höfum gefið liana út í öllum þeim gerðum, sem
hið erlenda félag liefur látið í té, að auki eina útgáfu Nýja
testamentisins í stóru broti. 1 öðru lagi er sýnt, að ekki verð-
ur unnt að nota leturplöturnar frá brezka Biblíufélaginu oft-
ar. Þaer eru orðnar það slitnar, að enn ein prentun eftir þeim
kemur ekki til greina. Það er ekki að öllu leyti eftirsjá að
því, því að uppsetning textans er engan veginn svo smekkleg
sem vera mætti, enda hafa engar breytingar eða umbætur
verið gerðar á benni áratugum saman. TJtgáfa íslenzku Biblí-
nnnar liefur ekki aðeins livað þýðingu snertir og málfar setið
1 sama fari í liálfa öld, lieldur og að miklu leyti um alla áferð.
Og stafsetningin er úr gildi fallin fyrir 30 árum. AUt þetta
þarf umbóta við og er stjórn Biblíufélagsins ráðin í því að
beita sér fyrir verulegum breytingum til batnaðar um leið
°g setja þarf textann að nýju hvort eð er. Þessar ytri aðstæð-
knýja á um átak á næstunni. Þá er og þess að minnast, að
Bibííufélagið á stórt afmæli framundan. Eftir þrjú ár er liðin
bálf önnur öld frá stofnun þess, og eftir 4 ár er rélt öld síðan út-
Rafa Biblíunnar livarf úr landi og Brezka og erlenda Biblíu-
félagið tók liana að sér. Yér hljótum að balda til þessara af-
>næla, einkum þess, er fyrr var nefnt, og stjórn Biblíufélagsins
er einliuga um að vinna að því, að félagið haldi upp á 150 ára
afniæli sitt með jtví að gefa Biblíuna út af því tilefni á veg-
^egan liátt. En ótalið er það atriði þessa máls, sem er mest,
en það er sjálf íslenzka þýðingin. Mönnum liefur lengi verið
’jóst, að þar er ýmsu ábótavant. Snemma árs 1961 fór stjórn
Biblíufélagsins Jiess á leit við 3 tiltekna menn, að þeir tækju
;‘ó sér endurskoðun á Gamla testamentinu. Þeir eru þessir:
'r- Asmundur Guðmundsson, biskup, sr. Guðmundur Sveins-
*°n, skólastjóri, og dr. Þórir Ivr. Þórðarson, prófessor. Nefnd-
111 hefur með bréfi 21. febr. s. 1. skilað tillögum í hendur
stjornarinnar, sem eru á þessa leið:
»Undir nauðsynlega endurprentun Biblíunnar bið fyrsta
verði bafinn undirbúningur bandrita Gainla testamentisins.
b Greinarmerkjasetning verði leiðrétt eftir jiví sem Jtörf kann
að gerast, svo og málfræðilegar skekkjur, ef þær verða fundnar.
“• Jahve sé breytt í Drottin. 3. Mannanöfn séu færð til sam-