Kirkjuritið - 01.07.1962, Side 22
308
KIRKJURITIÐ
ræmis viS íslenzka málvenju. 4. Efnisfyrirsagnir skulu samd-
ar fyrir liverjum kapitula. 5. Á sínum tíma verði leitað að-
stoðar sérmenntaðs íslenzkufræðings við verkið. 6. Manni,
sem liefur sérþekkingu á uppsetningu bóka verði falið af
Biblíufélaginu að sjá um uppsetningu og útlit Biblíunnar. 7.
Áætlun sé gerð um verkið“.
Þetta eru tillögur nefndarinnar um undirbúning undir
næstu prentun Gamla testamentisins.
Þá hefur félagsstjórnin einnig kjörið endurskoðunarnefnd
fyrir Nýja testamentið, en í lienni eiga sæti allir fjórir
prófessorar Guðfræðideildar, auk þeirra sr. Guðmundur
Sveinsson, skólastjóri, kandidat Jón Sveinbjörnsson og biskup.
Það er mönnum kunnugt, að Ásmundur biskup liefur um
skeið unnið að endurskoðun á þýðingu Nýja testamentisins og
mun verk bans senn bggja fyrir fullbúið. Með tilliti til þess
var svo að orði kveðið í ályktun biblíufélagsstjórnar um þessa
nefnd, að liún skyldi liafa sérstaka liliðsjón af þýðingu lians.
Auðsætt er, að tíminn er skammur, ef miðað er við fyrrnefnt
ártal, og kemur það í hlut nefndarinnar að gera sér grein
fyrir því, bvað fært er, framkvæmanlegt eða æskilegt varð-
andi endurskoðun á textanum fyrir næstu prentun, á lilið-
stæðan liátt og liin önnur endurskoðunarnefnd hefur þegar
gert. En því lief ég varið þessum mínútum til þess að gera
grein fyrir þessu máli, að liér er í fyrsta lagi um verkefni að
ræða, sem mjög varðar kirkjuna og alla kirkjunnar menn,
og í öðru lagi vildi ég skírskota til presta og annarra um það,
að Biblíufélagið veldur ekki þeirri ábyrgð, sem það hefur á
sig tekið í þágu kristninnar í landinu nema það njóti aukins
stuðnings og brautargengis með þjóðinni. Það á nú 200.000
kr. í sjóði, en setning, prentun og pappír nýrrar Biblíu kostar
út af fyrir sig hálfa milljón, eins og verðlag er í dag. Mun
vart fjarri lagi að álykta, að það kosti fulla milljón að gefa
þjóðinni sæmilega vandaða Biblíu. Það fé verður Biblíufe-
lagið að liafa til umráða, það er |)jóðlegt, menningarlegt
metnaðarmál, það er kristið nauðsynjamál, kristin skylda.
HúsmœSraskólinn á Löngumýri
Ég lief þá litið yfir farinn áfanga og staldrað við nokkur
verksummerki á veginum. Aðalumræðuefni þessarar presta-