Kirkjuritið - 01.07.1962, Side 31
KIRKJURITIÐ
317
er hann varla fyrir hendi. Grundvallaratriði AA samtakanna
er að reyna að vekja trúarlega hugsun lijá hinu drykkju-
sjúka fólki, fá það til að horfast í augu við vanmátt sinn gegn
afenginu og leita lijálpar Guðs. Á fundum ræða menn vanda-
mál sín, en þeir eru haldnir vikulega. Um 400 menn og kon-
ur munu vera í AA samtökunum en fátt þó af konum. AA
sanitökin starfa á Siglufirði, Keflavík og í Reykjavík liafa
þau bækistöð sína að Hverfisgötu 116. Ýmsir teíja að AA
samtökin séu það sama og Bláa handið, en svo er þó ekki.
AA samtökin efla persónulega hjálp milli áfengissjúklinga
en Bláa bandið kemur upp stofnunum til hjálpar þeim.
Bláa handið er áfengisvarnafélag, sem hóf starfsemi sína
árið 1955. Það rekur lijúkrunarstöð Bláa bandsins að Flóka-
götu 29 í Reykjavík og vistheimili að Flókagötu 31. Vist-
menn koma allir af frjálsum vilja. Lágmarkstími er þrjár
vikur í fyrsta sinn, en ein vika síðar. En hámarkstími er fimm
°g þrjár vikur. Sami sjúklingur fær ekki vist nema tvisvar á
ari. Fyrstu 9 dagana er liami innilokaður en fær eftir það úti-
vistarleyfi allt síðdegið og er það gert til þess að reyna á sjúkl-
mginn, gefa honum tækifæri til að koma ýmsum ináhim sín-
Um í betra horf og forðast of snögga breytingu frá einangrun
lll athafnalífs. (í hjúkrunarstöðinni er rúm fyrir 31 sjúkling
°g þar af 8 konur. Á vistheimilinu búa menn, sem annað
hvort koma af Bláa bandinu eða drykkjumannahælinu í Víði-
Mesi, hafa þeir þar heimili sitt og greiða fyrir sig sjálfir).
Lækningin byggist á Jjví að breyta manninum án nokkurrar
þvingunar. Það er ekki reynt að taka glasið frá manninum
heldur ná manninum frá glasinu. í tengslum við Bláa bandið
starfa einnig drykkjumannahælið í Víðinesi, sem er nánast
Iranihaldshæli Bláa handsins, drykkjumannahælið Gunnars-
holt eða Akurhóll og drykkjumannahælið Úlfarsá. Ekkert
Jiessarra liæla er fyrir konur, aðeins 8 rúm á hjúkrunarstöð
Bláa handsins.
Úá er það áfengisvarnaráð og áfengisvarnanefndir.
Afengisvarnaráð er yfirstjórn áfengisvarna í landinu, Það
vinnur gegn neyzlu áfengra drykkja á ýmsan hátt, t. d. með
utgáfu smárita og öflun kvikmynda erlendis frá. Áfengis-
varnanefndirnar gangast fyrir skólamótum og liafa beitt sér
Ú'rir reglugerðum um löggæzlu á almennum skemmtisam-