Kirkjuritið - 01.07.1962, Page 35
KIRKJURITIÐ
321
Þa3 er auðvelt fyrir okkur að varpa allri sökinni á þá, sem
liafa völdin, en ætli við séum ekki samsek og sofum líka? Þrátt
fyrir allt þetta tal um danshús, drykkjuskap og fósturmorð, er
almenningsálitið raunverulega ekki á móti því, a. m. k. ekki
ákveðið. Ef svo væri, fengi þetta voðaástand ekki að ríkja.
Við erum svo fljót að finna afsakanir. Við erum svo víðsýn
°g umburðarlynd. Ætli við værum svona umburðarlynd ef
málin snertu son okkar eða dóttur, systur eða bróður? Al-
menningsálitið befur mikil völd. Ef almenningsálitið væri ein-
dregið og ákveðið á móti ósómanum mundi ástandið ugglaust
batna.
Margt er það sem vantar til bjálparstarfsins. Við getum
minnt á stúlknaheimili, mæðralieimili, sumardvalarheimili
fyrir börn, eftirlitsstöð fyrir unglinga, sem koma til Reykja-
víkur utan af landi, næturskýli fyrir útigangsfólk, o. s. frv.
Hver aðili liefur sínar óskir um betri starfsskilyrði og sínar
tillögur til úrbóta.
Hér í borg eru ýms heimili þar sem fyrirvinnulausar mæður
búa með börn sín í slæmum búsakynnum. Mæðurnar koma
bvergi börnum sínum fyrir og þær þreytast margar hverjar á
beimasetunni og taka það ráð að bæta sér liana upp með því
að vera úti á kvöldin og fram eftir nóttu. Þær eru því þreytt-
ar í morgunsárið en börnin liress og spræk og drífa sig út
að leika þótt þau séu lítið klædd og illa tilböfð. En oft hefur
feynslan orðið sú, þótt auðvitað gildi liér ekki eitt um allar,
að ef bægt er að koma börnunum fvrir á daginn og mæðr-
unum í vinnu, kemst regla á líf þeirra og þær sinna börnun-
um vel. Þeim, sem um þessi mál fjalla, finnst það því skyn-
samlegri ráðstöfun að koma upp dagheimilum fyrir þessi
börn og sjá beimilin komast í gott lag beldur en að borgin
greiði sí og æ með heimilunum og þau komist í æ meiri óreiðu.
Og bér er annað vandamál. Barnaverndarnefnd Reykja-
víkur befur þrjú uppeldislieimili fyrir mismunandi aldurs-
flokka upp að 16 ára aldri. Oft kemur það fvrir, að börn þurfa
uð dveljast á þessum uppeldisbeimilum alla sína æsku og
eru orsakir ýmsar. Á þessum 16 árum þurfa börnin að skipta
þrisvar um umhverfi, þrisvar þurfa þau að ganga í gegnum
þá raun að semja sig að nýjum félögum og kynnast nýju for-
stöðufólki og þrisvar þurfa þau að slíta sig frá félögum og