Kirkjuritið - 01.05.1963, Blaðsíða 41
KIHKJURITIÐ
231
Huðrún Ólafsdóttir kona Jóliannesar Hannessonar o;; hennar
'lóttir o;; fleira fólk, ef pláss leyfði. 1 þriðja sæti sat eftir 1890
fólk úr Bæ. Þar efst við vegginn sat Guðríður kona Jóns Guð-
inundssonar í Bæ. Þegar liún var í fyrsta sinn hér við kirkju,
há sal hún í kór lijá Jóni, sem þá var á leið að verða maður
kennar, og þótti henni það vel sæma, þó að ekki væri það
venja — svo mikið tillit var til hennar tekið. Framar í öðru
og þriðja sæti var fólk frá Gelli.
Áður en ég enda þetta, ætla ég að skrifa nokkur orð um
sónginn. Þegar ég man fyrst til, þá var sami maður forsöngv-
;'ri og meðhjálpari. Það liefur að öllum líkindum verið Þórður
hórðarson, er var bóndi í Ytri-Vatnadal á árunum 1866—1884.
Hann dó 1886. Hann var sagður liafa verið mjög sönghæfur
iiuiður, og um langt skeið bjó kirkjusöngurinn að rödd og söng-
hæfni dætra lians.
Eg man eftir, að Friðbert Guðmundsson í Vatnadal gegndi
þessu starfi og hefur líklega oft gert það um ævina, ef með
þurfti. Á þessu límabili sungu allir í kórnum undir, en fált
eða ekkert fólk frammi í kirkjunni.
Á árunum 1888—90 var heimiliskennari í Bæ og víðar mað-
llri sem hét Guðmundur og var Kjartansson. Hann hafði verið
hennari í Bolungarvík. Hafði líka oft verið forsöngvari í Hóls-
hirkju. Hann lagði sig eftir að læra sönglög og kenndi þau
öðrum. Það voru víst mest sálmalög. Hann var því forsöngv-
an hér, þegar hann var liér, og kom oft úr annari sveit til
hess. Það voru kölluð ný lög, sem þá var farið að syngja. Hann
stoð í kórnum við austurhlið og í hóp að baki hans þeir, sem
hann hafði verið að kenna að syngja, og liefur þetta verið
fyrsta myndun að söngflokk í kirkjunni, en hinum fækkaði,
sem sungu úr sætum sínum.
Fyrri hluta vetrar 1891 var lieimiliskennari á Stað maður,
sem hét Álfur og var Magnússon. Hann var úr Utskálasókn á
óarðsskaga. Hafði h ann verið þrjá vetur í Latínuskólanum í
Reykjavík. Hann var lipurmenni og námsmaður mikill. Hann
hafði verið í Holti hjá séra Janusi í eitt ár. Þar hafði hann
yerið forsöngvari í kirkjunni og spilað á orgelið. Voru þó