Kirkjuritið - 01.11.1967, Page 16

Kirkjuritið - 01.11.1967, Page 16
414 KIRKJURITIÐ um altækum kröfum, sem lieimurinn gerir til vor í margvís- legum myndum, stundum á vettvangi viðskipta og efnaluigs- lífs, stundum á vettvangi stjórnmála, en einnig á sviðum sið- venja, hugsjóna eða liugmyndakerfa. Játum vér Ivonungsvehh Jesú Krists tökum vér altæka afstöðu til hans sem drottius vors, en afstæða (relativa) afstöðu til allra annarra hluta, andlegra sem efnislegra. b. Víkjum því næst að krossfestingunni. Hafi oss verið gefið með Inkarnationinni að sjá liina djúpstæðu einingu á xnilh Guðs og heimsins, þá má lieita að lokað sé fyrir þá sýn undir krossi Krists. Því að með krossfestingunni kveður heimurinn yfir sér þann dóm að vísa á bug mætti þeirrar einingar persónugerfingu sáttargjörðarinnar. Og að sama skapi sel11 kærleikur Guðs í Inkarnationinni umvefur lieiminn allau 1 sínum margbreytileika, þannig eru það og sömu öflin, maður- inn og heimur hans, sem sameinast um þá ógnarlegu gjöre’ krossfestinguna. Krossfesting Jesú er þar af leiðandi sú dóms' athöfn, þar sem gjörvöllum háttum þessarar aldar er varpað í deigluna. Lexían sem vér lærðum af Inkarnationinni, að allir verald" legir hlutir séu afstæðir, fær undir krossinum aukinn þung*1’ en það á svo neikvæðan hátt, að vér fáum vart lengur fundið þeim nokkurn tilgang, annan en að tortímast í sjálfskapaðr1 þversögn. Þessi lexía varar við að gera sér of háar vonir un1 manninn-í-heiminum, vér erum minntir á, að heimur vor el enginn annar en sá, sem krossfesti Krist. Krossfestingin opinberar ljósar en nokkuð annað, að heim- urinn lifir í mótsögn við sig sjálfan. Um leið og hann sel11 sköpun vísar á bug skapara sínum og endurlausnara, upP' hefur hann sjálfan sig til alræðisvalds yfir öllum sínum gjörð' um og hugsunum. Við þessa upphafningu afskræmist eðh heimsins sem sköpun, hann gerir til sín meiri kröfur en han» fær risið undir og linýtir sér þar með þann fjötur um fet’ sem heldur honum föstum í viðjum lífsdeyðandi afla. Þessui» fjötri, sem á máli kirkjunnar nefnist synd, hefur verið lýst sem „die Damonie des Ich-suchenden Lebens“, lielfjötur sjáHs' þóltafullrar sérhyggju. Áður en vér hverfum frá krossfesting' unni má benda á að dómur er kveðinn upp yfir manninum"1 heiminum, sem yfir einni heild. Krossfestur „undir PonduSl

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.