Kirkjuritið - 01.01.1968, Page 22

Kirkjuritið - 01.01.1968, Page 22
16 KIRKJURITIÐ ganga fram fyrir skjöldu og mæla með því að réttlætið náifram að ganga. Ég verð heiðarlega að játa að slíkri afstöðu fylgja þjáningar og fórnir. En missið ekki móðinn, þótt þér séuð ofsóttir og dæmdir sakir réttlætisins. Berið þér sannleikanum og réttlætinu vitni munuð þér sæta liáði og fyrirlitningu. Það mun dynja á yður að þér séuð óraunsæir hugsjónamenn og hættulegir öfgaseggir. Það getur meir en svo hent að þér verðið kallaðir kommúnistar fyrir það eitt að trúa á hræðralag mannanna. Fari svo, verðið þér að taka þessu og sýna ineð því svart á livítu að yður sé full alvara. Verið getur að það kosli yður að missa vinnuna eða stöðu yðar í flokksstiganum. Jafnvel þótt svo kunni að fara að sumir verði að kosta líkam- lífinu til að hjarga börnum sínum frá andlegum dauða, er því til að svara að ekkert getur talist kristilegra. Bræður mínir, látið ekki óttann við ofsóknir fylla yður kvíða. Þér verðið að sættast á liann, ef þér liefjið baráttu fyrir æðri hugsjónum. Ég dirfist að ræða um þetta af nokkru valdi, því að líf mitt var endalaus ofsóknarkeðja. Eftir afturhvarf mitt ráku lærisveinarnir í Jerúsalem í mig hornin. Seinna sætti ég rannsókn í Jerúsalem sakir villukenninga. Mér var varpað í fangelsi í Filippi, varð að strita í Þessaloniku, varð fyrir árás múgsins í Efesus og var óvirtur þegar ég kom til Aþenu. En út úr öllum þessum þrengingum kom ég enn sannfærðari en áður um „að hvorki dauði né líf, né englar, né tignir, né hið yfirstandandi, né liið ókomna . . . muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú, drottni vorum.“ Takmark lífsins er ekki að öðlast liamingju, njóta munaðar, komast lijá þjáningum, en að gjöra vilja Guðs, livað sem fyrir kemur. Ég kemst ekki lijá að hrósa þeim af yður, sem óhagganlegir liafa boðið ógnunum og skelfingum byrginn, fangavist og líkamsmeiðingum og ótrauðir boða, að Guð sé faðir vor og allir menn séu hræður. Svo göfugum Guðsþjónum er mikil huggun að orðum Jesít: „Sælir eruð þér, þá er menn atyrða yður og ofsækja og tala Ijúgnadi allt illt um yður mín vegna. Verið glaðir og fagnið, því að laun yðar eru mikil í liimnunum, því að þannig ofsóttu þeir spámenn- ina, sem voru á undan yður.“ Ég verð að slá botn í bréfið. Silas bíður eftir að fara með

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.