Kirkjuritið - 01.01.1968, Side 24
KIRKJUItlTIÐ
18
göfuglyndi sínu og lirokast af guðrækni sinni. Án kærleika
verður góðleikurinn að sjálfselsku og píslarvættið andlegt
stærilæti.
Kærleikurinn er mestur allra dygða. Hann opinberar liina
sönnu eigind trúarinnar og krossins Krists. Golgata er oss
liinn mikli sjónarlióll. Þaðan höfum vér útsýn yfir eilífðina
og greinum hvernig kærleikur Guðs birtist á öllum tíinum.
Af takmarkalausri ástúð leyfði Guð að sinn eingetni sonur
dæi, svo að vér mættum lifa. Sameinaðir Kristi og hræðrum
yðar í kærleika, skuluð þér öðlast aðgang að liinum eilífa há-
skóla lífsins. í heimi valdsýkinnar, kúgandi harðstjórnar og
blóðugs ofheldis eruð þér kallaðir til að feta veg kærleikans.
Og jiér munuð reyna, að vopnlaus kærleikur er sterkasta afl
í lieimi.
Ég verð að kveðja yður. Berið fylgjendum Krists, ölluni
lieilögum í Ameríku, kveðju rnína. Yerið hugrakkir, verið
samhuga, varðveitið friðinn.
Mér er ekki unnt að hitta yður í Ameríku, en við mæt-
umst í eilífðinni. Honunt, sem megnar að gæta vor við falli,
honum, sem lyftir liugum vorum upp úr myrkurdjúpi hug-
sýkinnar upp í Ijósliæðir vonarinnar honum, sem lætur ár-
geisla gleðinnar lirekja nótt örvæntingarinnar á flótta —
honum heyrir mátturinn og valdið nú og um alla eilífð. Amen.
Þetta er ein af frægum ræðuin liöf., sem þýildar liafa veriiV á mörg tungu-
mál og eiga erindi til alls heimsins.
Vér erum orðnir dauðskelkaðir við að eiga litið í sjóði. Vér fyrirlítum
livern þann, sem tekur einfalda lifnaðarhætti og innri rósemi fram yfir
auðæfi. Vér höfum glatað öllum skilningi á því hvernig menn gátu forð-
um daga hafið fátækt af hugsjónaástæðum til skýjanna: Frelsi undan oki
auðæfanna, óháðan hng, karlmannlegt æðruleysi. Það að vera metinn eftir
því sem maður er eða gerir en ekki því því livað hann á, og liafa rétt til
að fórna lífinu fyrirvaralaust ef svo vill verkast. I einu orði sagt sann-
siðferðislega riddaramennsku. Vissulega er ríkjandi ótti menntuðustu stétt-
anna við lélega fjárhagsafkomu mesti siðferðissjúkleikinn, sem þjáir
menningu vora. -— William ]anus.