Kirkjuritið - 01.01.1968, Side 32

Kirkjuritið - 01.01.1968, Side 32
26 KIRKJURITIÐ 1 stað helgistaða og trúarrita blasa alls staðar við myndir af Marx, Lenin og Mao og sum slagorð þeirra eru jafnvel greypt í kletta. Leiðsögumaður skýrði fréttaritaranum svo frá að helgi- dómarnir liefðu verið orðnir alóþarfir. Fólkið væri fráliverft öllum trúarbrögðum. Samt mun mega liafa fyrir satt að eins og sumar árnar í nágrannalandinu Júgóslavíu renna sums staðar langa vegu neðan jarðar, mun trúin enn lifa í hjörtum fjölda manna og þeir iðka helgisiði í leynum. Sá átrúnaður á „foringjana“, sem inargir liafa tekið, er gamalt fyrirbæri og liefur aldrei til lengdar nægt til að skipa sess æðri trúarbragða, kæfa bæn og tilbeiðslu, eða taka fyrir alla andlega revnslu. En þótt Alhanía sé lítið land og lokaðra frá umheiminuni en flest önnur nú á dögum, einræðisstjórnin alvöld og einsýn, eru þetta miklar fréttir. Þær geta vart kallast mikill menningarvottur. Eru einn af svörtu blettum nútímans. Finnbogi GuSmundsson, Innri-NjarSvík: Litið um öxl / dag cr ég áttatíu ára, GuSs almáttugs laiddi mig liönd. Vort jarSlíf er brothœtt, sem báira, er brotnar viS klettótta strönd. „Ég lifi og þér munuS lifa.“ svo lausnarinn okkur nam tjá. Og drögum aldrei í efa hans orS, sem aS fulltreysta má. í dag er ég áttatíu ára og eilífSin nálgast brátt. ÞaS huggun er harma og sára, aS hafa lifaS í sátt.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.