Kirkjuritið - 01.01.1968, Síða 36
KIKKJURITin
30
liann liafði sjálfur samiS eða þýtt úr erlendum bókum. Áliugi
lians var óþreytandi að upplýsa og fræða sóknarfólk sitt
f veraldlegum framkvæmdum var séra Hilaríus að ýmsu
leyti undan sínum tíma. Þegar dönsku vefstólarnir komu
fyrst til landsins, lét hann smíða einn slíkan vefstól suður í
Reykjavík fyrir lieimili sitt og vann löngum sjálfur að vefnaði.
Frá Mosfelli bárust dönsku vefstólarnir út um sóknina og
Grímsnesið og þá fóru gömlu kljásteinsvefstólarnir að leggjast
niður þar í sveit.
Sem að líkum lætur, eru nú fáar sýnilegar minjar lengur
til frá dögum séra Hilaríusar á Mosfelli. Þó eru þeir til tveir
og báðir í Mosfellskirkju enn í dag. Annar er sjálfur prédik-
unarstóllinn. Hann lét séra Hilaríus smíða í kirkjuna 1799,
sama árið eða árið eftir að liann lét þar af prestskap. Stólinn
smíðaði Ámundi Jónsson í Langholti í Hrunamannahreppi,
sem kunnur var á sinni tíð fyrir kirkjusmíðar og mikinn hag-
leik. Prédikunarstóllinn liefur varðveitst í sinni upprunalegu
mynd fram á þennan dag. Hann er með hinu svokallaða
„snikkaraverki“ eins og það var oft orðað á fyrri tíð. Allur
málaður liinum gömlu kirkjulitum, grænum, rauðum, bláum
og gulum litum.. Á hliðum hans eru myndir af guðspjalla-
mönnunum. Að ofanverðu er letrað í reiti ritningarorðin al-
kunnu: „Sælir eru þeir sem heyra guðs orð og varðveita það.“
Að neðanverðu er ártalið 1799 og nafn smiðsins skammstafað.
Þessi prédikunarstóll var í síðustu torfkirkjunni á Mosfelli
sem rifin var 1847 og síðan í timburkirkjunni sem þá var
byggð og enn stendur.
Hinn liluturinn er önnur kirkjuklukkan á Mosfelli. Það
var sögn gamalla manna í sókninni, að klukku þessa liefði
séra Hilaríus pantað erlendis frá og gefið kirkjunni á fyrri
prestskaparárum sínurn á Mosfelli. Þessi klukka liefur því,
sem margar aðrar, borið liljóm sinn frá Mosfellskirkju vfir
Iiorfnar kynslóðir um næstum tvær síðastliðnar aldir. Og þá
má geta þess, að prestsverkabækur séra Hilaríusar liafa varð-
veitst frá fyrstu árum hans á Mosfelli og óslitið úr því. Eru
þær færðar af mestu nákvæmni og prýði. Hefur hann verið
einn þeirra presta, sem fært hefur inn í kirkjubækur ýmsar
upplýsingar um fólkið í sókninni bæði lífs og liðið. Lýsir
liann að sjálfsögðu eins og venja var til, kristindómsþekkingu