Kirkjuritið - 01.01.1968, Síða 42

Kirkjuritið - 01.01.1968, Síða 42
36 KIIiKJURITIÐ Merkur, Venus, Júpíter og Saturn. Nöfn fjögurra þessara guða eru í norrænu goðfræðinni: Týr, Óðinn, Þór og Freyja. Þess vegna heita vikudagarnir sex á Norðurlandamálum: Sólardag- ur, mánadagur, týrsdagur, óðinsdagur, þórsdagur og freyju- dagur, en þar er Saturn sleppt og laugardagur settur í staðinn, en í ensku nöfnunum er hann saturday — dagur Saturns. 1 „De Gamle Österlande“, eftir G. Howardy, 2. hindi, bls. 32, er nákvæm lýsing á þessu liáreista musteri. stærð hverrar hæð- ar og litar að innan. Prestar þessa sóldýrkunarfélags voru vígð- ir með eins konar altarisgöngu eða sakramenti, sem var að éta ofurlitla kringlótta köku. Þess vegna gerðu konurnar í ísrael kökur til að fórna liimnadrottningunni. Prestar þessa félags urðu að lifa einlífi. Þegar þetta félag missti aðsetur sitt í Babýlon, settist það að í borginni Pergamos. Og nú komum við aftur að þessum stað, sem sagt er um í safnaðarbréfinu, að þar bíri þá Satan. Biskupinn, lierra Sigurbjörn Einarsson, fer eftirfarandi orð- um um Pergamos: „Pergamos var mikil borg og fornfræg. Hún liafði verið höfuðborg í samnefndu ríki og grísk menning náði þar þá miklum blóma. Konungar efldu lærdóm og bókagerð. Við Pergamos er kennt pergament, bókfell, er þær bækur voru skráðar á, sem bezt skyldi vanda. Nú var lokið sjálfstæði þessa ríkis. Rómverski skattstjórinn sat löngum í Pergamos og þar var miðstöð binna rómversku yfirráða yfir skattlandinu. A hárri bæð fyrir ofan borgina gnæfði altari mikið, lielgað gríska guðnum Zevs, víðfrægt listaverk, talið eitt af furðuverk- uni heims. Miklu fjölsóttari lielgistaður var þó liof lækninga- guðsins. Asklepioss. Þangað sótti fólk livaðanæva að. Þá liafði rómverska keisaranum verið reist musteri í borginni þegar á öndverðum keisaratímanum. Keisaradýrkun liófst sem sé fyrr i Pergamos en víðast annars staðar og lét þegar mikið að sér kveða, efldist þaðan og breiddist út um skattlandið. Ekkert er vitað um uppbaf kristins safnaðar í þessari borg. Kristur, búinn sigursælu vopni orðs síns, kannast við, að aðstaða lærisveina lians er tiltakanlega erfið í Pergamos: Ég veit bvar þú býr, þar sem er liásæti Satans. Af því, sem þegar hefur verið sagt, er Ijóst, livað býr undir

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.