Kirkjuritið - 01.12.1975, Page 55
Frd tíðindum beima
Úr skýrslu æskulýðsfulltrúa
Þjóðkirkjunnar
Æskulýðsstarfið er að mestu fjár-
^agnað með ríkisframlagi, sem í ár
(1975) nemur kr. 2.000.000.00. Var hér
um verulega hækkun að ræða frá síð-
asta ári, en þá var fjárframlag ríkis-
sjóðs til reksturs kr. 1.200.000,00. Þetta
Þýðir að sjálfsögðu, að hendur okkar
hafa ekki verið eins þrælbundnar og í
fyrra, en þá varð að gæta þess að
stofna ekki til annarra framkvæmda en
Þeirra, sem borguðu sig að mestu á
sama ári. A frumvarþi til fjárlaga fyrir
ánð 1976, er nú, þegar þetta er ritað,
'iggur fyrir til afgreiðslu á Alþingi og er
1 höndum fjárveitinga-nefndar Alþingis,
er reiknað með kr. 3.500.000,00 til
r®ksturs. Virðist mér, að þessari fjár-
veitingu megi una, þegar haft er í
Þuga, hve frumvarpið gerir ráð fyrir
rr'iklum niðurskurði frá fjárlögum 1974.
Hinu er ekki unnt að taka þegjandi,
a® enn er skorið niður fjárfrarhlag
r'kissjóðs til annars aðstoðaræsku-
iýðsfulltrúa.
Skömmu eftir haustráðstefnu 1974
9engu æskulýðsfulltrúi og æskulýðs-
nefnd á fund fjárveitinganefndar Al-
Piugis og lögðu áherzlu á fjárveitingu
'ij annars aðstoðaræskulýðsfulltrúa,
eins og heimild er fyrir í lögum. Ganga
Su bar ekki sýnilegan árangur.
Guðmundur Einarsson, aðstoðar-
æskulýðsfulltrúi, tók við störfum fram-
kvæmdastjóra Hjálparstofnunar kirkj-
unnar frá 1. febrúar 1975. í starf hans
hjá Æskulýðsstarfinu var ráðinn frá 1.
marz 1975. Jóhannes Tómasson. Skal
hér Guðmundi þökkuð vel unnin störf
um leið og honum er óskað allrar
Guðs blessunar í nýju starfi og
Jóhannes boðinn velkominn. Megi
Drottinn blessa hann, konu hans og
allt starf hans fyrir Guðs kristni á is-
landi.
Hinn 1. júlí s. I. tók Æskulýðsstarfið
og Hjálparstofnunin á leigu húsnæði
við hlið gamla húsnæðisins. Var þessi
ráðagjörð samkvæmt vitund og vilja
biskups. Talsverðar breytingar voru
nauðsynlegar á húsnæðinu og kostn-
aður nokkur því samfara. Engin vinna
var þó aðkeypt nema flutningur á
síma. Húseigandi greiddi hluta kostn-
aðarins. Breytingar þessar voru tíma-
frekar og lögðust allir á eitt að flýta
þeim. Skrifstofunni var þó aldrei lokað.
Lögðu starfsmenn og konur hart að
sér og unnu oft langt fram yfir vinnu-
tíma. Á engan er hallað, þó að Guð-
mundi og Jóhannesi sé þakkaður
dugnaðurinn sérstaklega. Breytingar
þessar og flutningar eru ekki enn í
höfn, þó segja megi, að vel sjái til
lands.
293