Kirkjuritið - 01.04.1978, Page 54

Kirkjuritið - 01.04.1978, Page 54
trúar á orð Krists né til trúar sem sál- rænnar (innri) reynslu. Hvorki trúarleg hluthyggja né trúarleg hughyggja eiga fræðilega gild svör í þessum efnum. (Það leynist að vísu svar í báðum þessum sjónarmiðum, eins og síðar verður vikið að, en hvort þau geti tal- ist fræðilega gild er annað mál). Trúmenn kunna að láta sér i léttu rúmi liggja fræðileg vandkvæði á svari við umræddri spurningu; í þeirra aug- um er Kristur „vegurinn, sannleikur- inn og lífið“, hvað sem líður öllum fræðilegum skoðunum eða rökum. Þeim gæti jafnvel þótt með öllu óvið- eigandi að gera orð Krists að viðfangi fræðilegrar könnunar og guðfræðin sjálf vera útúrsnúningur eða frávik frá því sem máli skiptir, hinu lifandi orði Guðs í hjörtum manna. En hér er ekki til umræðu persónu- leg trú manna eða sannfæring, heldur rökin fyrir skoðunum okkar á eðli þeirra orða sem höfð eru eftir Kristi: flytja þau sannleik eða eru þau blekk- ing? Ef við föllumst á að við höfum fræðilega séð engu meiri ástæðu til að ætla að boðskapur Krists sé sann- ur en við höfum til að telja að hann sé blekking, þá blasir við að mat okkar á þessum boðskap er gersamlega háð því hvernig hann verkar á okkur og annað fólk sem við höfum kynni fa. Með öðrum orðum: mat okkar á boð- skapnum hvílir þá ekki á merkingu hans heldur áhrifamætti. Við getum jafnvel haldið fram þeirri skoðun að merking boðskaparins og inntak hans og áhrif væru eitt og hið sama. Ég hygg raunar að sú sé einmitt hin rökrétta afleiðing eða niðurstaða bæði trúarlegrar hughyggju og trúar- 52 legrar hluthyggju eins og þeim hefur verið lýst, og að í því felist óbeint svar þeirra við spurningunni um innra gildi boðskaparins: að gildi hans sé i sjálfu sér opinberunin sem hann get- ur valdið í hugum manna — og ekk- ert annað. Að þessu atriði, sem ég tel að skipti höfuðmáli fyrir afstöðu okkar til kristni og kristindóms yfirleitt, verður vikið í lokagrein þessa erindis, en nú skul- um við huga að þeim áhrifum sem boðskapnum virðist umfram allt vera ætlað að hafa á menn og þjóðir °9 jafnframt reyna að átta okkur á frum- leika hinna kristnu trúarsetninga og stöðu þeirra. 4. grein. í sögu kristninnar á sér sífellt stað samleikur hins eiginlega kristna boð- skapar og fjölmargra þátta mannlífs' ins sem eru henni í sjálfu sér óvið' komandi. í raun er kristni óhemju' flókið félagslegt og sögulegt fyrirbserl þar sem ægir saman helgisögum þjóðtrú, helgiathöfnum og kennisetn- ingum af öllu tagi. Þessi fyrirbæri lifa og dafna í skjóli kirkju, klaustra, skóia og annarra stofnana sem seldar eru undir stjórnunarvald klerka, biskup^ páfa, konungs eða ríkis. Til þosS a gera megi áhrifamætti kristninnar s með nokkru réttlæti er því nauðsy’ legt að skilja milli þess sem er kristn' samfara í raun, og kjarna kristninnen Röklega séð er kristni ekkert anna en mannlegt andsvar við boðs Krists. En þetta andsvar felur í 5 tvennt ólíkt: annars vegar trú, hl vegar trúarbrögS. (2) Trú er hin huglægu viðbrögð e,n J

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.