Kirkjuritið - 01.04.1978, Blaðsíða 70
skírnarinnar. Sá lestur er lokþáttur í
undirbúningi skírnarinnar. Eftir þenn-
an ritningarlestur fer skírnin fram. Sé
engin skírn, þá fer fram í hennar stað
endurnýjun skírnarheitisins, sem allir
taka þátt í.
AS lokinni skírninni var messa
haldin, og fengu þá hinir nýskírðu að
vera í messu í fyrsta sinn og gengu
þar til altaris. Sú messa hófst til forna,
um leið og morgunstjarnan sást á
lofti."
Myndir þær, sem nú birtast í
Kirkjuriti frá páskavöku, tók Ólafur
Sigurðsson, fréttamaður, við vökuna
á Selfossi í vor.
Norrænt mót kristniboðsfélaga,
er starfa meðai Gyðinga
Á s. I. vetri efndu nokkrir leikmenn
og prestar hér á landi til samtaka með
sér um að styðja kristna boðun meðal
Gyðinga. Félag hefur þó ekki verið
stofnað. Hið fyrsta átak samtakanna er
undirbúningur norræns móts eða ráð-
stefnu að Skálholti dagana 21.—25.
sept i haust. Að ráðstefnunni standa,
auk íslenzku samtakanna, þau kristni-
boðsfélög á Norðurlöndum, er haft
hafa starfsemi meðal Gyðinga.
Meðal efnis, sem væntanlega verður
fjallað um má telja:
— Gyðingdóminn í samtíð,
— Hátíðir Gyðinga og áhrif þeirra á
kristnina,
— Viðhorf nútíma Gyðinga til Jesú
Krists,
— Endurmat kirkjunnar á viðhorfum
til Gyðinga,
— Kristniboð eða samræður,
— Kristniboð meðal Gyðinga annais
vegar og heiðingja hins vegar,
— Friðþægingardag Gyðinga og
kristna friðþæging.
Helztu fyrirlesarar og ræðumenn
verða væntanlega:
Pastor Axel Torm, f. form. í Den
danske Israelsmission,
Generalsekretær, Svend Erik Larsen,
frá sama félagi,
Israelssekreterare, Gun Friedner,
frá Uppsölum,
Studieledare, Björn Fjárstedt,
frá Uppsölum,
Missionsdirektor, Alpo Hukka, frá Hels-
ingfors, og með honum í för verða
musiksekreterare og diplomorgan'
ist Gunvor Helander og sópransög-
konan Marja-Liisa Nurminen.
Prófessor, dr. Magne Sæbö
frá Oslo,
Pastor Ole Chr. Kvarme, er starfar
í Haifa í ísrael,
Universitetslektor, Karl W. Weyde,
frá Oslo,
Cand. theol., Björn Helge Sandvei,
frá Oslo,
Dr. Sigurbjörn Einarsson ,biskup,
Sr. Eiríkur J. Eiríksson, prófastur og
Sr. Magnús Guðjónsson, biskupsritarl’
Ráðstefnan er ætluð bæði leikmönniJF1
og prestum, er styðja vilja málefn1 ’
en takmarka verður mjög fjölda Þa
takenda vegna húsakosts í Skálhol^
Þeir, sem hug hafa á þátttöku ge®
snúið sér til Bjarna Ólafssonar,
ors, Bauganesi 28, Reykjavík, s,r
Magnúsar Guðjónssonar, biskupsrl
ara eða síra Guðm. Óla Ólafssona <
Skálholti.