Kirkjuritið - 01.09.1978, Page 46
slík starfsemi verður að kynna sig
hægt og rólega og í öðru lagi býður
aðstaðan hér ekki upp á það vegna
þess að húsnæðið er ófullnægjandi
til langdvalar fyrir eldra fólk þegar
vetur ríkir.
- Eru áætlanir um framkvæmdir
hérá staðnum?
- Ingibjörg Jóhannsdóttir hefur
ekki enn sleppt hendinni af Löngu-
mýri þótt hún nú orðin 73 ára. Ný-
lega stofnaði hún myndarlegan sjóð
til uppbyggingar Löngumýri og vona
ég að framkvæmdir geti hafist næsta
sumar við að auka og bæta húsakost
á staðnum, en það er orðið mjög að-
kallandi eins og ég nefndi áðan. Ingi-
björg hefur fullan skilining á þeim
hugmyndum sem ég hef verið að
nefna við þig og hefurmikinn áhugaá
uppbyggingu slíkrarstarfsemi.
— Hvað hefur verið gert til upp-
byggingar hér á staðnum síðan Þjóð-
kirkjan tók við fyrir 15 árum?
- Það er e. t. v. ekki svo mjög mik-
ið. Hitaveitan hefurverið mjög endur-
bætt og nú er komin hér varanleg
hitaveita sem er mikill kostur á svona
stað. Einnig hefur verið gengið frá
skólplögnum og gerð rotþró og
byggingar lagfærðar eftir því sem
kostur hefurverið á.
- Er fastur fjárhagsgrundvöllur
fyrirrekstri ástaðnum?
- Skólinn hefur verið rekinn af ríki
og Þjóðkirkjunni í sameiningu und-
anfarin 15 ár, þannig að Þjóðkirkjan
hefur greitt sama framlag til viðhalds
og endurbóta eins og þær sýslur sem
eiga eignaraðild í húsmæðraskól-
anum. Ríkið hefur hinsvegar greitt
starfsfólki laun. Reksturinn vegna
204
starfs fyrir eldri borgara hefur verið
alveg óháður þessu. Laun þess fólks
sem hefur starfað hér á meðan á dvöl
eldra fóksins stóð hafa verið greidd
með dvalargjöldum þátttakenda.
Hafa sveitarfélögin greitt styrki til dval-
ar hér sem nemur um 1/3 af dvalar-
kostnaði. Afganginn verður fólk síð-
an að greiða úr eigin vasa.
- Hversu margt starfsfólk hefur
verið hér á meðan þessir sumar-
dvalarhópar hafa verið hér?
- Að jafnaði hafa verið hér tveir
aðilar sem hafa séð um dagskrá fyr,r
dvalargesti o. þ. h„ ráðskona í eld-
húsi ásamt aðstoðarstúlku og auk
þess hefurverið greitt sem svarar 1/2
starfi fyrir ræstingar. Ég tel þetta vera
alveg nægjanlega fjölmennt starfslið
hér jafnvel þótt eitthvað væri fjölgað
dvalargestum með auknu húsnaeði,
en ef kennsla yrði veigameiri þáttur
en nú er, yrði auk þessa að greiða
laun fyrir kennslu.
- Þú talaðir áðan um að hugsan-
legt væri að lengja tímablilið sem
starf yrði rekið fyrir eldri borgara hér.
Áttu þá við að hér væri hægt að reka
svona starfsemi allt árið?
- Einhvern tíma gæti komið að Þvl
að þetta yrði starf sem rekið yrði a^
árið hér eða einhvers staðar annars
staðar, en þangað til tel ég að kirkjaLi
hafi bæði þörfog möguleikaáað nýta
staðinn betur en nú er gert. Þörf er a
námskeiðum fyrir starfsfólk í sunnu-
dagaskólum, og æskulýðsstarfi svo
eitthvað sé nefnt.
- Heldur þú ekki að það sé fuH
þörf að reka skóla allt árið sem sinnir
þessum verkefnum sem þú nefndir
þarna ásamt endurmenntunarnám-