Kirkjuritið - 01.09.1978, Blaðsíða 11
°9 átta ára. Hann fékk síðar Hvamm í
Laxárdal. Hann var son Lárusar Þ.
Blöndals, sýslumanns á Kornsá og
bróðir Sigríöar, konu síra Bjarna Þor-
steinssonar, tónskálds á Siglufirði.
^ona hans var Bergljót Tómasdóttir
trá Brekku í Aðaldal, en sonur þeirra
°9 einkabarn, Lárus Þ. Blöndal,
ýsrzlunarmaður á Sauðárkróki. Síra
°jörn varð skammlífur. Hann dó í Vík-
Urn á Skaga á þriðja degi jóla árið
1906, röskum átta árum eftir stofn-
fundinn á Sauðárkróki. Þeirsíra Frið-
j'k friðriksson voru bekkjarbræður í
Latínuskólanum, og tókst með þeim
^'kil vinátta. Kemur Björn því mjög
V|ð sögu í æviminningum síra Frið-
Þar segir síra Friðrik m. a. um
°jörn: ,,Hann var gáfaður piltur og
nafði marga kosti, sem ég fann, að
mig vantaði." Og enn segir þar um
V|náttu þeirra: ,,Fyrstframan af varég
remur veitandinn í sambandi okkar,
en seinna varð það hann, sem kom
Tér dýpra og dýpra inn í þakkarskuld
V|ð sig og ættfólk sitt, og þyrfti ég að
r|ta heila bók um það, ef ég ætti að
kryfja það til mergjar."
S'ra Jón Pálsson, prestur á Hösk-
u|dsstöðum, þrjátíu og fjögurra ára.
ann var frá Dæli í Víðidal, af alþing-
[smönnum kominn. Hann þjónaði á
°skuldsstöðum í fjörutíu ár og var
Pjófastur síðustu árin. Kona hans var
argrét Sigurðardóttir frá Sæunnar-
? °^Urn á Skagaströnd. Tvær systur
ans urðu prestskonur. Vigdís, hálf-
^Vstir hans, giftist síra Gísla Einars-
yni í Hvammi í Norðurárdal, síðar
^ afholti, og Ragnheiður, alsystir
ans, varð síðari kona síra Jóns Þor-
a ssonar á Tjörn. Bróðir síra Jóns
Pálssonar var Sigurður, cand. phil.
og bóndi á Auðshaugi, faðir síra Jóns
Árna Sigurðssonar í Grindavík. Síra
Jón Pálsson dó á Blönduósi í septem-
ber1931.
Síra Sigfús Jónsson, prestur í
Hvammi í Laxárdal og síðar á Mæli-
felli. Hann er tæpra þrjátíu og tveggja
ára. Síra Sigfús var þjónandi prestur í
þrjátíu ár, en gerðist síðan kaupfé-
lagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga á
Sauðárkróki. Þá varð hann og alþing-
ismaður Skagfirðinga í nokkur ár á
gamals aldri, árin 1932-1937. Kona
hans var Guðríður Petrea Þorsteins-
dóttir frá Grund í Þorvaldsdal. Meðal
barna þeirra voru Ásrún, móðir síra
Sigfúsar J. Árnasonar á Sauðárkróki,
og Helga fyrri kona síra Sveins ög-
mundssonar á Kirkjuhvoli. Síra Sig-
fús dó að Nautabúi á Neðribyggð
sumarið 1937.
Síra Pálmi Þóroddsson, prestur að
Höfða, er fyrstur frá vinstri að telja í
efstu röð. Hann er á þrítugasta og
sjöttaári, þegarmyndin ertekin, Suð-
urnesjamaður að ætt. Hann hafði
fyrst setið að Felli í Sléttuhlíð, en
Fellsprestakall og Hofsprestakall á
Höfðaströnd voru síðan sameinuð og
Höfði gerður að prestsetri. Síðar sat
hann á Hofsósi frá árinu 1908 og þar
til hann lét af embætti árið 1934. Kona
hans var Anna Hólmfríður Jónsdóttir,
dóttir síra Jóns Hallssonar prófasts í
Glaumbæ. Af 12 börnum þeirra má
nefna Hallfríði, móður síra Baldurs
Vilhlemssonar í Vatnsfirði, Sigrúnu,
konu Jóns Sigurðssonar, alþingis-
manns á Reynistað, og Bryndísi,
konu Steindórs Gunnlaugssonar,
lögfræðings, frá Kiðjabergi. Síra
169