Kirkjuritið - 01.09.1978, Page 50

Kirkjuritið - 01.09.1978, Page 50
Einstæður merkismaður hefur kvatt. sterklegra verka hans sér víða stað á þeim reit er hann helgaði krafta sína. Veit ég, að sóknarbörnin sakna hans sárt. Og svo er um fleiri. Séra Stefán var góð gjöf Guðs þeim til handa, sem fengu að njóta samvista við hann. Gunnar Björnsson. Ég var einu sinni á ferð, til þess meðal annars, að tala um trúmálin við börnin á ýmsum heimilum. Mörg þeirra yngstu lásu fyrir mig eitthvað af versunum sínum. Ýms af þeim versum, sem ég heyrði þá hef ég kunnað og elskað og lesið oft sjálfur síðan ég var barn og lærði þau fyrst af vörum ástvina minna. Stundum heyri ég afturámóti vers, sem ég kann ekki. Svovarþað íþettasinn. Barn áeinu heimilinu las fyrir mig vers, sem ég kannaðist ekki við. Það getur vel verið að einhver yðar kunni það. Það er þetta litla vers: „Heimsins þegar hjaðnar rós og hjartað klökknar, Jesús! gef mér eilíft Ijós, sem aldrei slökknar." Þetta litla erindi hefur ekki mikið skáldlegt gildi. En hugsunin í því snart mig samt. Það er svo heilbrigð trúarhugsun." Þetta verða nálega alir þeir að reyna, sem komast á efri árin, að rósir lífsins, sem svo eru nefndar, hjaðna, fölna - hvort heldur það er rós æskunnar, gleðinnar, heilbrigðarinnar, eða ástvinasam- búðarinnar. Og það fer líka flestum svo, ,,að hjartað klökknar." Gleðiljósin, sem virtust svo mörg og skær íæskunni og margur hélt, að mundu endast sérvel og lengi, þau depruðustfyren varði; en rökkurýmissa lífsraunaog vonbrigða kom að manninum. Hann sannfærðist þá um það, hve ónógur hann var sjálfum sér. Við það vaknaði ömurleikinn, raunahugurinn. Hann þekkti nú af eigin reynslu þann sannleika, að „heimsins þegar hjaðnar rós,“ þá fer það oft svo, að „hjartað klökknar." Höfundur þessa litla erindis var ekki í vafa um, hvað hann átti að gera, hvert hann átti að snúa sér, þegar svona var komið. Hann þekkti aðeins einn vin, sem hann treysti til að hjálpa sér til að lifa rósömu lífi, þó að rósir lífsins fölnuðu! til hans leitar hann, til hans kallar hann öruggur: „Jesús! gef mér eilíft Ijós, sem aldrei slökknar!" Slíkt Ijós getur enginn gefið nema Jesús. Úr bókinni „Hundrað hugvekjur til kvöldlestra eftir íslenzka kennimenn.“ 208

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.