Kirkjuritið - 01.12.1978, Page 50
standa í stórræðum. Víst má þó telja
að þessi blaðaskrif, fundarhöld og á-
sakanir hafi lítt mildað honum krank-
leikann.
Niðurlag
Hér hefur verið tekin saman í stórum
dráttum saga spiritismans á íslandi
fyrstu árin. Er hér um mjög svo á-
hugavert málefni að ræða og vel þess
virði að það sé vendilega rannsakað
frá byrjun og frá öllum hliðum, a. m. k.
fram að stofnun Sálarrannsóknarfé-
lagsins 1918, af aðilum sem væru
(eða reyndu að vera) óhlutdrægir um
málefnið sjálft. Það háir að sjálf-
sögðu mjög verkefni sem þessu,
hversu litaðar allar heimildir eru. Svo
til enginn, sem hefurtekiðsérpennaf
hönd til að fjalla um málið, hefur gert
það afstöðulaust, og gildir það auð-
vitað einnig um þær heimildir sem
hér hafa verið notaðar. Ber þó að
vona, að tekizt hafi að sigla nokkurn
veginn milli skers og báru og sæmi-
lega heillegt yfirlit hafi fengizt um
upphaf spíritismans hérlendis, þótt
margt sé hér ósagt.
Til dæmis má nefna, að auðvitað
risu fljótlega upp smátilraunahópar
úti á landsbyggðinni, sbr. Þjóðviljann
28. feb. 1906 (XX,10), sem segir það
opinbert leyndarmál, að menn vfða
um land sóu að fást við spíritisma, s.
s. f Reykjavfk, Isaflrði, Akureyri, Þing-
eyjarsýslum og flelri stöðum.
Elnnig er sú hllö málsins óreifuð
hér, hve mikla athygli deilur þessar
og tllraunir vöktu í Kaupmannahöfn,
en þó aðallega meðal landa vorra í
288
Vesturheimi, sem höfðu mikinn á-
huga á trúarlegri velferð íslendinga.
Má vitna í því sambandi í Fjallkonuna
(XIII, 33,14. júlí 1906) þar sem sr. Frið-
riki Bergmann er hrósað fyrir að
segja hleypidómalaust frá Tilrauna-
félaginu í Breiðabliki. Annað mál sé
með Sameininguna, Lögberg og Vín-
land.
Þá væri áhugavert að rannsaka
greinarnar sem íslenzku Tilraunafé-
lagsmennirnir birtu í erlendum ritum,
en þær virðast vera nokkrar. Þá þyrfti
að taka kennilegu hliðina vandlega
fyrir og rekja þá sögu áfram. Og svo
mætti lengi telja, því mörg eru verk-
efnin, en eins og kunnugt er á spírit-
isminn djúp ítök hér: Saga hans lýsir
þætti í íslenzku þjóðarsálinni.
Háskóla íslands
Reykjavík, ágúst1977
Helga Þórarinsdóttir