Jörð - 01.12.1946, Síða 10
B. O. B.:
Almenningsálit
Áfengismálin.
ÞAR skal byrja, scm frá var horfið í síðasta JARÐAR-hefti: Ríkisstjórnin
þarf að skipa stóra nefnd til að kynna sér nákvæmlega ]) meðferð þjóðar-
innar á áfengi, 2) óheillir þær með þjóðinni, cr af áfengisnautn stafa, 3) með-
ferðina á sams konar vandamálum með þeim þjóðum, scm hclzt liafa gert eitt-
hvað að gagni við slíku. í fjórða lagi ætti ncfndin að leggja frain tillögukerfi
um nýja áfengisinálalöggjöf og aðrar opinberar ráðstafanir til úrbóta í þeim
efnuin.
Sem kunnugt er, hefur þcgar verið lögð fram á Alþingi tillaga um sams konar
nefndarskipun, að öðru leyti cn því, að þar er gert ráð fyrir fáincnnri nefnd;
ennfremur að hún verði ólaunuð. JÖRÐ álítur, svo sem fram var tekið í síð-
asta hefti, að nefndin eigi að vcra fjölmenn, en einnig að hún verði að geta
launað eða greitt kaup þeim, sein verk hennar mæðir mcst á. JÖRÐ álítur heil-
brigði þjóðlifsins og vclfcrð þjóðarinnar svo háða því, að viðfangsefni þetta
verði tekið einbcittuin og skynsamlegum tökum, að misráðið væri að horfa í
kosfnað til þcss. Er þess óskandi, að Alþingi taki tilcfni af tillögu Jónasar Jóns-
sonar, og samþykktum viðsvegar að, til vcigamikilla og skynsamlegra aðgerða
í málinu.
I greinargerðinni fyrir tillögu sinni tekur flutningsmaður það frarn, að fyrsta
skilyrðið til þess, að við viðfangsefnið verði ráðið, sé að lieilbrigt og sainhuga
almcnningsálit myndist í því. Þetta cr áreiðanlega höfuðskilyrði. Það er, eins
og JÖRÐ tók fram síðast, ekki ncnia til ills eins, að settar séu liarðar setningar
laga og reglugerða um þessi efni, nema tryggilega sé búið um mögulcika til
að framfylgja þeiin. Þcir möguleikar eru hins vegar ekki til, nema af tvennu
tagi: annað hvort á undirstöðu stcrks almcnningsálits eða í skjóli harðstjómar.
Sérhver tilraun til strangrar löggjafar um þessi cfni, sem ekki byggðist á öðru
hvoru þessu, mundi aðeins koma þjóðlifinu í fullkomið uppnám. Á íslandi
ætti það ekki að þykja álitamál, á hvorri undirstöðiinni skuli byggja.
Það er þá alincnningsálitið, scm mest ríður á að koma í heilbrigt horf. Nefnd
scm sú, er liér hcfur verið um rætt, gæti veitt slíku almcnningsáliti undirstöðu
og farveg. Hún gæti gert það mögulegt að samcina þau 95% þjóðarinnar, sem
í hjarta sínu óska þess, að tekið verði fyrir liið ört upprennandi áfengisböl í
landi voru, og sárnar að vera vottar að vansæmandi truflunum af völdum
ölvaðra manna á almannafæri og vettvangi, scm ríkið sjálft eða aðrar virðu-
legustu stofnanir þjóðarinnar standa að. Slík nefnd yrði að sjálfsögðu ekki sam-
sett af bannmönnum fremur en raunverulegt fylgi þeirra stendur til, eða því
scm næst, því þetta væri sjálfsbjargarviðlcitni þjóðfélagsins í licild.
Bannmenn ættu ekki að slá hcndinni á móti samvinnu við þann fjölda ar.d-