Ljós og skuggar - 01.01.1903, Side 12

Ljós og skuggar - 01.01.1903, Side 12
12 vakti óþægilegar tilfinningar að hugsa um það. Hvað skyldi hann þá segja er hann heyrði að Steinn, væri nú orðinn dugandi og reglusamur maður? Og þarna var knæpan. En húsið var orðið eitthvað umbreytt, það var búið að mála það svo fallega, og það voru hvít gluggatjöld fyrir hverjum glugga; það var svo sem ekki líkt neinni drykkjukrá núna. Og nú kom hann auga á húsið sitt. Hann fjekk hjartslátt. Ætli konan hans og börnin sjeu þar þá enn? Vjer skulum allra snöggvast bregða oss inn til Hildar og barnanna. Hún hafði fyrir guðs blessun og óþreytandi vinnu, getað haldið í húsið, og jafnvel bætt við sig ýmsum búsgögnum, sem maður hennar hafði áður veðsett og selt fyrir vín. — Hún sat nú inni í litlu stofunni með bæði börnin sin. Það var nærri því dimmt, því það var áliðið sumars, þau höfðu ekki kveikt ljós. Þau vissu að nú átti Steinn að vera laus úr fangelsinu í dag, og bjuggust við honum með hverri eimlest. Nú var seinasta lestin komin, ætli hann hafiþákomið með henni? Þau sátu þegjandi í legubekknum, og Jóhann litli hallaði • höfðinu að brjósti móður sinnar. Þeim var öllum hálf órótt innan brjósts; þau höfðu nú haft frið og næði á heimilinu svo lengi. „En mamma," sagði Karen hægt, „ætli það geti nú ekki skeð að pabbi hætti að fara á knæpunu?" „Við skulum vona það Karen mín.“ „En ef hann gjörir það nú ekki?“ „Við getum ekki gjört neitt nema biðja guð fyrir honum.“ „Ef jeg væri nú ekki krypplingur, þá gæti jeg hjálpað honum til í smiðj-

x

Ljós og skuggar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljós og skuggar
https://timarit.is/publication/478

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.