Ljós og skuggar - 01.01.1903, Page 13

Ljós og skuggar - 01.01.1903, Page 13
13 unni,“ sagði Jóhann, „þá hefði jeg kannske líka getað komið í veg fyrir að hann sje með honum Karli. “ „Elsku barn, það gætir þú ekki!“ „Mig langar svo til að hjálpa honum pabba til að losna við þessa eymd,“ sagði drengurinn „en jeg get ekkert gjört.“ „Þú getur beðið guð, og himnafaðirinn heyrir bænir, einnig þínar, Jóhann minn.“ í sama biii heyrðist fótatak úti fyrir. Hildur hafði ákafan hjartslátt, er hún lauk opnum dyrun- um. „Ó, faðir, himneski faðir, hjálpaðu mjer, styrktu mig!“ andvarpaði hún. „Það ertþáþú, Hildur!“ sagði Steinn og rjetti henni höndina, „komdu sæl, hvernig líður ykkur?" Hann gekk inn í stofuna; Karen þaut á móti honum og Jóhann litli haltraði á hækjunni til hans. Kona hans kveikti á lampanum. Steinn faðmaði börnin að sjer með tárin í augun- um. „Enn hvað þið eruð orðin stór, og það er svo snyrtilegt hjá ykkur, jeg var svo hræddur um, að þið hefðuð orðið að flytja hjeðan.“ „Guð hefur litið i náð til okkar“, sagði Hildur. „Þú ert víst svangur, Steinn? Jeg ætla að hugsa um kveldverð handa þjer.“ Hún gekk fram í eldhús- ið, en Karen tók fram diska og skeiðar, og bráðum sátu þau öll að kvöldverði. Þau töluðu ekki mikið saman, en þegar búið var að bera af borðinu, tók Hildur ritninguna og sagði: „við erum vön að lesa guðs orð áður on við göngum til svefns; villt þú hlusta á, Steinn?"

x

Ljós og skuggar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljós og skuggar
https://timarit.is/publication/478

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.