Ljós og skuggar - 01.01.1903, Síða 21

Ljós og skuggar - 01.01.1903, Síða 21
21 hafði komizt að brautinni, og hvernig honum hafði tekizt að koma föður sínum af brautateinunum, það hafði enginn hugmynd um. Steinn var algjörlega yfirbugaður af örvæntingu og sorg. Kona hans var lengi hræddað umhannmundi fyrir fara sjer. Hennar eigin sorg var ósegjanlega sár, en þegar allra mesti sviðinn var kominn úr sárinu, og hún gat farið að hugsa rólegar um þetta, þá varð sorg hennar gleði biandin. Hún minntist þess, hversu opt hið sjúka barn hafði beðið þess að fá að losna við hinn hrörlega líkama sinn og koma«t í dýrðina hjá guði, og nú vissi hún að honum leið svo vel, en betra en allt annað var þó það, að drottinn sjálfur fjekk að tala til hennar huggandi og og hughreystandi í orði sínu. Steinn gat hvorki unnið nje sofið fyrstu vikuna eptir að þetta vildi til, en þá fór andi guðs að hafa áhrif á hann. Hann varð gagntekinn af ógurlegri angist vegna synda sinna- Sjera Villmann og kona hans heimsóktu hann opt um þetta leyti, og þau urðu verkfæri í hendi guðs til þess að leiða hann hann að krossi Jesú Krists. Jesús, „rjettiátur fyrir rangláta," þau orð leystu hann úr synda viðjunum. Hann vissi að syndir hans voru „rauðar sem blóð, “ en loksins öðlaðist hann frið í þeirri trú, að blóð Jesú Krists hreinsar af allri synd. Og konan hans sá og reyndi að guð hafði heyrt bænir hennar, en frelsun mannsins hennar vai' keypt dýru verði.

x

Ljós og skuggar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljós og skuggar
https://timarit.is/publication/478

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.