Ljós og skuggar - 01.01.1903, Side 22

Ljós og skuggar - 01.01.1903, Side 22
22 VII. Fjögur ár eru liðin. Það er laugardagskvöld snemma vors, eins og þá er vjer komum fyrst að húsi Steins, og umhvei-fis húsið er allt mjög líkt því, sem áður var, nema vjer sjáum hvergi litla krypplinginn, sem sat úti fyrir húsinu í byrjun sögunnar. Inni í stofunni er allt hreint og fágað, útlitið ber vott um velmegun heimilisins. Steinn er nýkominn heim úr smiðjunni, hann situr í legu- bekknum og heldur á 3 ára gömlum dreng. Hildur sat og var að sauma Við gluggann, og Karen var að binda blómsveig úr vorblómum, hún ætlaði að leggja hann á leiðið daginn eptir. Steinn gekk nú iðuglega í guðs hús. Það var dálítið erfitt fyrir hann í fyrstu, er fólkið var að stinga saman nefjum um hann, þegar hann kom inn í kirkjuna, og hvísiast á um það, hvemig hann hefði orðið or- sök í dauða barns síns, sem hann niu árum áður hefði skaðað, svo það hefði aldrei beðið þess bætur, en hann kannaðist við, að hann væri hinn aumasti allra syndara, og hann bar fúslega minkun þá, er hann átti svo mjög skilið. En árin liðu og menn hættu, að tala um þetta, þvert á móti hlaut Steinn smátt og smátt virðingu hjá öllum, er menn sáu hina gagngjörðu breytingu, sem orðin var á honum. Dauði Jóhanns litla hafði einnig mjög mikil áhrif á Karl, hann byrjaði nýtt líf, og yfirgaí syndabraut sína. Þannig sneri guð hinu illa til góðs. „Guði sje lof fyrir friðinn, sem við eigum nú,“ sagði Hildur. „Þegar jeg hugsa uri liðna tímann,

x

Ljós og skuggar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljós og skuggar
https://timarit.is/publication/478

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.