Ljós og skuggar - 01.01.1903, Side 25

Ljós og skuggar - 01.01.1903, Side 25
25 lega að halla undan fæti, hugsaði hún. Þau urðu samt. nógu löng 7 seinustu árin. Jón fór í skóla, hann var jafnan ofariega í sínum bekk. „Það þarf ekki að lesa svo mjög mikið til þess,“ sagði hann, „þeir eru ekki svo afar lærðir sumir.“ Og hann las heldur ekki sjerlega mikið, og seinast hætti hann alveg að lesa, og mörg voru tárin, sem hún móðir hans hafði fellt yflr því. Loks kvaddi hún hann einn dag á bryggjunni, hann ætlaði til Ameriku að leita gæfunnar þar. Hún stundi þungan, og brá erminni að augum sjer, víst til þess að þerra nokk- ur tár, sem komu fram í augun. Og þá var nú Helga orðin eina barnið hennar,, hún frjetti látið hans Jóns ári eptir að hann fór. Já, hún var falleg hún Helga, það hlutu aliir að kannast við, og engu síður var hún skemmtileg og kát, en „jeg vildi jeg væri kyr á Brekku enn þá,“ hugsaði hún móðir hennar með sjer, þegar Helga stóð tímum saman frammi fyrir speglinum, og var að „punta" sig. „Góðan daginn." Hún hrökk við. „Góðan dag.“ „Jeg er með reikning til yðar.“ „Hvað er hann hár?“ „15 kr. 75 au.“ Hún tók við blaðinu, sem pilturinn rjetti henni. i Hún setti upp gleraugun sín, og fór yflr reikning- inn: Siiki sólhlíf, „ball“-skór, hvítir „hanskar," „hárklemmur," „cigarettur" o. s. frv. — Hún rjetti piltinuro peikninginn. „Jeg get ekki borgað hann

x

Ljós og skuggar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljós og skuggar
https://timarit.is/publication/478

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.