Ljós og skuggar - 01.01.1903, Page 27

Ljós og skuggar - 01.01.1903, Page 27
27 „Já, þá held jeg maður verði að hugsa fyrir því. “ „Ekki veitir af því blessuð, það sem er þriðju- dagur í dag, jeg er á leiðinni að kaupa mjer í hvít- an kjól. „Jeg verð að fá mjer kjól.“ „Já, góða, hver heldurðu að geti brúkað peisu- fötin sem eru svo andstyggileg, við svoleiðis tæki- færi. Jeg á spáný peisuföt, sem jeg fjekk í fyrra þegar jeg fermdist, mjer dettur ekki í hug að koma í þau; svo á jeg líka fermingarkjólinn minn, en það er ómögulegt að vera í honum af því það eru þröngar ermar á honum, svo jeg sagði mömmu að jeg yrði að fá mjer nýjan kjól; jeg er annars að hugsa um að hætta alveg við ólukku peisufötin, það er líka hver einasta af þessum „fínni dömum" bæjarins kominákjól, svo „maður stendur sig ekki við annað“ en breyta til, ognúna þegar allt mögu- legt er hægt að fá hjerna í bænum, útlærðar „döm- ur“ til að setja upp á manni hárið og „kruila“ mann hvað þá annað, góða bezta, biddu hana mömmu þína um kjól fyrir „ballið,“ jeg get ekki sjeð þig á peisufötum, þau eru svo „vemmileg.“ „Þetta er nú alveg satt, jeg á nú samt fjarska vönduð peisuföt úr 6 króna klæði, og spánýja silki- svuntu, og fallegt slipsi má alltaí fá sjer, svo gæti jeg nú haft „hárkiemmur" t.il að „flotta“ mig með, þær eru núna svo mikið brúkaðar, mjer þykir þær svo „sætar." wUss, blessúð fáðu þjer kjól; þú hlýtur að vera

x

Ljós og skuggar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljós og skuggar
https://timarit.is/publication/478

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.