Ljós og skuggar - 01.01.1903, Page 32

Ljós og skuggar - 01.01.1903, Page 32
32 sjer um mig piparsveinninn sá arna. Ó jeg gæti drepið hann!“ Á leiðinni heim sagði hún ínu frá þessu. „Hann er ekki „óforskammaður* nema dálítið, svona lætur þetta fólk. Hann er líka sagður hálf- vitlaus karluglan. Hann vill ekki leyfa neinum að iypta sjer upp, heldur vill hann víst að hver mygli i sínu horni eins og hann sjálfur." IV. Á laugardaginn var hellirigning. Helga var önnum kafin allan daginn við að búa sig fyrir kvöld- ið. Hún beið þess með óþreyju að dagurinn liði, og hún varð fegin í hvert sinn er stundaklukkan í dómkirkjuturninum sló. Móðir hennar kepptist við störf sín, gólf-þvotta og ýmislegt, Helga veitti því enga eptirtekt, að hún var miklu veiklulegri enn hún hafði lengi verið. Sjálf var hún með hugann í danssalnum. Loksins kom kvöldið. Klukkan 8 átti dans- leikurinn að byrja. Helga var búin að klæða sig. Hvíti kjóllinn fór henni vel. Ekki var hægt að setja út á fráganginn á hárinu hjá henni frú B., og nógu voru ermarnar víðar, hún hefði nærri því getað haft þær fyrir vængi, jæja það kom sjer nú vel! Hún leit i spegilinn, já, svona var það nú ágætt. Hún bar hvítt blóm í hárinu. Hún var falleg og hún

x

Ljós og skuggar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljós og skuggar
https://timarit.is/publication/478

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.