Syrpa - 01.09.1913, Qupperneq 5

Syrpa - 01.09.1913, Qupperneq 5
HULDU HÖFÐI 3 vörublænum í málrómnum, aö honum liaföi or'ðið talsvert um. “Þetta brauö, þessi drykkur og lampi eru sett í gluggann á hverju kvöldi og eru ætluð þeim, sem verða aö fara huldu höföi.” Þaö var eins og steini væri létt af hjarta allra þeirra er viö voru, þegar harin lauk viö setninguna. Vi'ö fórum aftur aö syngja þjóösöngva og segja sögur. Eg skildi ekki svariö til hlítar og nota'ði því fyrsta tækfæriö sem gafst eftir aö athygli hinna var dregin frá þessu, til aö spyrja þann, sem næst mér sat, hverjir þaö væru, sem yröu aö fara huldu höföi.” Það var afmælisbarnið, sem eg spurði. Hún studdi fingrunum á var- irnar og hvíslaði í eyrað á mér: “Það eru þeir, sem strjúka úr ánauð og reyna að komast undan á flótta.” “Eg hafði gleymt því, að Zitma er eitt af fyrstu þorpunum á leiðinni til Norðurálfunnar frá Niertchinsk, þar sem útlagarnir vinna í Karanámun- um. Eg liafði einnig gleymt því, þó að eg hefði oft heyrt þess getið, að þegar ánauðarokið yrði föngum ó- bærilegt, þó að líf og limir væru í veði, ef varðmennina sifjaði um of, sem sjaldan skeði, þá gripu þeir tækifærið og leituðu á náðir skógar- ins i kring. Auðvitað kjósa þeir helzt að flýja á sumrin eða vorin. En fangar, sem brotizt hafa út úr dyfl- issum, eiga sjaldan úr mörgu að velja. Þcir verða aö nota tækifærið til að komast út, þegar það gefst, þó að um hávetur sé og þó að þeir eigi á hættu að missa lífið í stórhríðum eða fyrir gráðugum úlfakjöftum. “Þeir sem hepnir eru með veðrið, cn verða þó að fara huldu höfði, feröast einsamlir í næturmyrkrinu. Þeir vita, að hér og þar eru ljós í gluggum og að þau eru þögul merki um, að þar er þeim óhætt að gera vart við sig. Ef þeir berja á glugg- ann, þá er hann opnaður. Það er guðlegt liknarverk að liðsinna þeim, sem verða að líða ranglátan dóm og leggja líf og blóð í sölurnar fyrir ætt- jörðina. “En gefandinn vill helzt ekki sjá flóttamanninn eða tala við hann, til þess að þurfa ekki að standa reikn- ingsskap gjörða sinna ef sporhundar stjórnarinnar koma og krefjast upp- lýsinga.” En rétt í því að stúlkan var að cnda við að segja mér þessa undar- legu sögu, þá heyrðist létt — undur létt bögg á snjóþöktum glugganum. Ótli og skelfing gagntók þá, sem inni voru. Allir störðu út í glugg- ann og biðu þess kvíðafullir, sem koma mundi. Húsbóndinn stóð upp, þungur á svip, og opnaði gluggann til hálfs, svo ísköld vindstroka fylti stofuna. Svo gekk hann aftur að sæti sínu, en settist ekki niður og sneri sér frá glugganum. Utan úr myrkrinu hcyrðist mæðu- leg þunglyndisrödd. Það var eins og snjókornin, sem þyrluðust inn á litla borðið, bæru liljóðið á bakinu. “Hér sé guð.” “Guð blessi þig,” sögðum við öll. “Við bjuggumst við þér, bróðir; maturinn þinn er þarna tilbúinn á borðinu,” sagði húsbóndinn. “Guð launi ykkur fyrir það.” Röddin var hás. Við heyrðum þrusk í snjónum. ' Snjónum, sem hafði safnast fyrir í gluggakistuna, var sópaö í burtu og helstirð liönd, blá og bólgin af k'ulda, með brotinn járnhring um úlfliðinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Syrpa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.