Syrpa - 01.09.1913, Side 9

Syrpa - 01.09.1913, Side 9
ÓEStllR f RIFÍ 1 vænti þess að hann tæki nieö þökkum sitt fátækléga húsaskjól og fæöi. Gesturinn svaraöi honum á jafn- góöri latinu. Kvaö sér gleöi aS hitta slíkan mann á þessum nyrztu stöövum og hann myndi ætíö minnast hans hlýlegu móttöku. Skipstjóri tók nú þátt í talinu og kvaöst skykli senda meö farangur Sir Daves til Ingjaldshóls síðari hluta dags, og þá gæti hanh orðið sam- ferða, ef honum þóknaðist það. En séra Jón, sem var svo barnglaður yfir herfangi sínu, vildi ekki eiga á hættu að missa það, og bauð því gestinum að verða sér samferða þeg- ar í stað. Slíkri kurteisi vildi gest- urinn ekki neita, og þeir lögðu þegar af stað til Ingjaldshóls. Eftir því sem lengra kom upp í landið, blasti við þeint hinn voldugi Snæfellsjökitll. Frá þeirri hlið er hann samt ekki eins fagur að iíta, eins og annars staðar frá. Sir Dave varð hugfanginn af þessari stórkost- legu útsýn, og vakti máls á þvi. En séra Jón var orðinn landslaginu svo vanur, að líonum fanst ekkert til um það, og hann bar í brj ósti svo rót- gróna fyrirlitning fyrir öllu um- hverfis sig, að það leit út fyrir að hann skildi alls ekki tilfinningar Sir Daves. Loks komu þeir að Ingjaldshóli. Séra Jón benti honum með hálf fyr- irlitlegu brosi á, aö þetta væri bústað- urinn sinn, og bað hann að sýna það lítillæti að ganga inn. Að lítilli stundu liðinni var gestur- inn sestur á fátæklega bekkinn í bað- stofunni; prestur bað hann velvirð- ingar á því, að hann yrði að ganga i burtu til aö útvega þeim eitthvað til hressingar En er’ndið var að finna Þorbjörn. I’ot'lijöni gamli var heimilismaður séra Jóns. Það var hann, sem fyrstur þekti enska skipið daginn áður, og kr.staði kaldyrðunum urn útlend- ingana. Hann var af gamalli heiðar- Iegri ætt; á fyrri árum hafði hann oít veriö í förum með erlendum þjóð- um, sem þá var fátítt uni íslendinga. begar árin færðust yfir hann, settist hann um kyrt. Og þegar séra Jón varð prestur í Ingjaldshóls- og Fróð- ársóknum, og gat lítið gjört sig skilj- anlegan á íslenzku máli, þá tók Þor- björn að sér að vera túlkur og milli- göngumaður prests og safnaðar, þrátt fyrir sitt útlendingahatur. Fyrst réðst hann að eins litinn tíma á prestssetrið. En hann fór þaðan aldrei. Þrátt fyrir óKkt lunderni og mentun, og gagnstæð áhugamál, gátu þeir séra Jón og Þorbjörn ekki skilið. Nú var Þorbjörn ráðsmaður hans og stýrði öllu því veraldlega, er prests- embættinu við kom. — Þeim fanst löngu vetrarkvöldin líða fljótt. Þor- björn sagði presti af ferðum sínum og öllu því merkilegasta, er hann hafði þar séð. Prestur fræddi Þor- björn aftur um ýmislegt, er hann hafði af bókum lært, og sagði honum til við latínunám, svo Þorbjörn gat haft gagn af léttum ritverkum lat- neskum. Þorbjörn var maður fá- skiftinn og fárra kunningi. Ætt- ingja átti hann enga. Oft var hann einn á gangi og sást sitjandi út við sjó starandi út á hafið. Hann talaði fátt, en oftast lenti orðum hans þar, aö útmála, hver hnignun væri í kyn- slóðinni núlifandi. Það þótti nú ekki rétt hugsað og bakaði honum mótmæli. En þó hann væri ekki vin-

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.