Syrpa - 01.09.1913, Síða 40

Syrpa - 01.09.1913, Síða 40
38 SÝRPÁ NorSur Ameríku, er liggur fyrir norSan heimskautabaug; var þar önn- ur grein íshafshvalsins. 1721 var gerð- ur út mikill skipafloti til hvalaveiða á þessum stöðvum. í flota þessum voru 251 skip frá Hollandi, 55 frá Ham- borg, 24 frá Bremen, 20 frá Spáni og 5 frá Noregi — samtals 355 seglskip. Um þessar mundir var mynda'ð félag í Björgvin, er veiða skyldi hvali í Davíðssundinu og jafnframt reka verzlun við Eskimóa. Félag þetta leystist þó von bráðar upp sökum peningaskorts, en margar tilraunir hafði það gert til að gjöra skip út til hvalveiðanna. Englendingar reyndu nú enn til þess að rétta við hvalaveiðarnar, og voru nú hepnari en áður. Lög voru samin er hétu 20 shillings verðlaunum á tonnið í öllum skipum, er gerð væru út i hvalaveiðar. 1750 voru verð- launin hækkuð upp í 30 shillings og síðast upp í 40 shillings. Þetta hreif. Hvalaveiðin í Davíðssundinu komst nú á sitt hæsta stig, en þá var líka dregið úr verðlaununum. Samfara þessu var hvalaveiðunum haldið áfram í höfunum kringum Spitsbergen alla 18. öldina og fram á fyrsta aldarfjórðung þeirrar 19. Árið 1814 og þar eftir dró mjög úr veiðinni, og skömmu síðar var henni hætt með öllu. Hvalaveiðaskipin höfðu þurft að sækja lengra og lengra , og loks alla leið að skörunum á ísnum austan við Grænland. Frá 1750 og fram yfir miðja 19. öld, má fullyrða að Englendingar hafi verið aflamestir allra þjóða þeirra, er hvalaveiðar stunduðu. Danir og Norðmenn tóku líka þátt i veiðum þessum, bæði við Spitsberg- en og Grænland, og 1620 var stofnað “Dansk-Norræna félagið” af Daná- konungi. Félagið skyldi senda 2 skip árlega til hvalaveiðanna, en því var hætt 1624. Veiöin varð því frjáls öll- um þegnum konungs. 1636 myndað- ist nýtt félag, en skip þau er send voru, ráku slælega veiðarnar, en leit- uðu í þess stað aö silfri og gulli með engum árangri. Árið 1697 voru 4 skip send til Grænlands frá Dan- mörku, og gekk þeim ferðin vel. Síðar meir, þegar Grænlenzka félagið var stofnað og því hafði verið veitt mjög mikil hlunnindi, voru tveim ár- um síðar risnar upp margar hvala- veiðastöðvar í höfnunum á Grænlandi, og til veiða sóktu 90 seglskip, er veiddu 344 hvali. Alt um það hnignaði hvalaveiðum Dana og Norðmanna svo, að 1784 var ný tilraun gerð til að lífga hana við aftur, með því, að Kristján konungur 7. hét 15 ríkisdölum fyrir hverja smá- lest í skipum, er gengju til hvala- veiða og fiskiveiða við Grænland og ísland, en þá skyldu skipin gerð út frá dönskum höfnum og þar skyldi einnig aflinn seldur. 1790 voru 33 skip í danska hvalaveiða-fiotanum, en meiri hluti þeirra var frá Noregi. Árið 1803 voru 30 skip gerð út og fórust 3 af þeim; ríkisstyrkurinn var eigi borgaður síðar en 1808. En 1830 og 1850 gerðu Norðmenn tilraun ti! að veiða hvali í Davíðssundinu. Lar sem hvalaveiðunum í höfunum við Spitsbergen var hætt á fyrsta fjórðungi 19. aldar, var veiðinni í Davíðssundinu Baffinsflóanum og við vesturstrendur Grænlands lialdið áfram alt til loka síðustu aldar, og jafnvel nú fara þangað fáein skip á ári hverju til veiða, þótt ei sé þaö lengur ábatavænlegt.

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.