Syrpa - 01.09.1913, Síða 44

Syrpa - 01.09.1913, Síða 44
42 SYftPÁ skipinu, íyrir það aí skilja mig eft- ir en láta mömnni fara og litlu syst- ur mína.” Um hádegisbiliö 5. Desember 1872 lá Atlanzhafið, þaö sem liggur ein- ar 300 mílur vestur af Gibraltar, lág- dautt eins og stööupollur, og voru á þvi svæöi þrjú skip hvert í annars sýn. Eitt þeirra var þýzkt eimskip í lausaförum. Þaö stefndi til Vest- ur-Indlandseyjanna þvert fyrir stafn annars skipsins, sem var brigggin María Celeste, einar 3 mílur frá henni. Eimskipiö dró npp merki, sem brigginni bar að svara, en hún gegndi því engu. Þá var eins og eimskipiö segði: “Jæja, ef þú vilt ekki eiga tal viö mig eöa að eg beri fréttir af þér, þá stendur mér á sama,” og hélt leiðar sinnar suður á bóginn unz þaö hvarf út fyrir læ- bauginn. Þriðja skipið var brezki barkurinn Dei Gratia, skipstjóri Boyce, á leið til Gibraltar. Boyce skipstjóri sá í firösjá sinni merkið, sem eimskipið gerði brigginni og bjóst viö aö sjá merki frá henni til andsvars, því kurteisisreglur far- manna geröu henni aö skyldu aö anza; en ekkert kom svariö. “Þetta er hláleg og afkáraleg ó- kurteisi, þegar betur er aö gáö. Það er skárri bölvaöur sjódurturinn, sem ekki tekur undir, þegar yrt er á hann á siglingu,” hugsaði Boyce skiptjóri, og hann afréð aö grenslast eftir hvernig lægi í þessu, því Bretinn var forvitnari heldur en stéttarbróðir hans á eimskipinu virtist vera. Hann notaöi svo hvert golukast af sunnan- blænum til aö færa sig nær brigginni og komst á endanum svo nærri henni, aö hægt var aö kalla til henn- ar af barkinum. “ÞaÖ litur út fyrir, að alt sé ekki með feldu á skipinu því arna,” sagöi skipstjóri viö stýrimann sinn Adams. “Ójá,” svaraði stýrimaður, “vita- skuld ætti þaö aö hafa uppi hvert seglsnipsi. °g eins og þaö vaggar. I'aö lætur, sýnist mér, eins og skips- höfnin öll væri dauðadrukkin.” Þeir átlu nú ekki nema tæpa hálfa milu aö skipinu og virtu þaö vand- lega fyrir sér, skipstjóri í firðsjá sinni og stýrimaður í tvíhólkskiki, og furðuðu sig á hve skipið léti an- kannalega, þangaö til báöir gullu viö í senn: “Engin hræöa sést uppi,” “Það hlýtur aö vera eitthvað i augunum á okkur, að viö sjáum þá ekki,” sagöi skipstjóri; “því, vita- skuld hljóta einhverjir aö vera þar.” Samt kom enginn anz frá skipinit. “Geröu þeim merki, Adams, aö við eigurn brýnt erindi viö þá. Þeir gegna þvi þó liklega.” Það nterki var óöar drcgið upp; en ekki var gegnt aö heldur. Aftur á móti fór skipið aö haga sér enn kynlegar en fyr, því golan gekk lítiö eitt til, og seglin á skipinu tóku að slettast til, svo lá viö voða. “En þeir bjánar,” gall viö í skip- stjóra. “Þáð er þó merkilegt, aö við skulum ekki sjá þá. Hví eru þeir aö fela sig. Uppi eru þeir þó, eins og mig varði, því nú eru þeir að víkja henni við aftur. En svei tnér, sem þeir eru ekki að reyna aö kom- ast undan okkur.” Skipstjóri geröi nú lúður úr lúk- um sér og setti fyrir munn sér og grenjaði: “O, hæ, brigg,” og stýri- maður tók ttndir kalliö meö honum, því þeir voru nú svo nærri aö vel mátti lieyra köllin yfir á Maríu Cel- este, En þeim til fnrðu var kallinu

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.