Syrpa - 01.09.1913, Side 48

Syrpa - 01.09.1913, Side 48
46 SYRPA sín fyrir árbitann daginn, sem þeir fóru, því þeir skipstjóri og stýrimaS- ur sáu þvottinn hanga á streng yfir lúgarnum. í stýrimanns herberginu fundu þeir miöa meö tölum á, sem byrjaö hafði verið á aö leggja sam- an, en ekki lokiö við. Var stýrimað- ur aö leggja þessar tölur saman eöa éta morgunverö sinn, þegar hann var kvaddur af skipi? í fimta lagi: skipsúrið kom ekki fyrir, en áttavitahylki og áttaviti skipsins voru vísir. Annars vantaöi ekki nokkurn skapaöan hlut á skipið, að því er þeir skipstjóri og stýri- maður gátu séö, nerna, ef til vill, skipsskjölin. Hásetarnir höfðu ekki svo ntikiö sent gefið sér tíma til að taka pípur sínar og tóbak nteö sér. í sjötta lagi — og það er býsnin niesta—, báturinn, sem fylgdi Cel- este var á sínum stað. Hvernig gátu þá skipverjarnir þrettán komizt af skipinu nema á bátum einhvers annars skips? 1 sjöunda lagi: “Mig langar til aö vita það,” sagði skipstjóri á leið- inni til Gibraltar meö fund sinn í eft- irdragi, “hvernig í því liggur, aö konan skyldi fara meö barn sitt af góðu skipi út á rúmsjó og taka ekki svo mikið sent náttklæði barnsins meö sér.” Annnars eru opinberu skýrslurnar um þenna kynja viöburð mjög ntarg- ar. í ríkisskjalasafninu eru skýrsl- ur þessar: Skipshöfn hverfur og farþegar. Skjal 136, frá Bandaríkja konjúl Johnson, dagsett í Gíbraltar 7. Jan- úar 1873: “Blettirnir á sverðinu og þilinu í káetunni á Maríu Celeste rcyndust ekki blóöblettir viö rann- SÓkn.” Skjal 137, frá sama, dags. 20. Jan. 1873: “Aðal eigandi briggskipsins Mariu Celeste kominn frá New York til þess að fá skipið afhent sér af farmannaréttinum. Ekkert hefir til skipshafnarinnar frétzt. Skipsúrið og skipsskjölin komu ekki fyrir á skipinu.” Skjal 138: “Bryggin María Cel- este afhent upprunalegum eiganda 12. Febr. 1873.” Skjal 139: “Bryggin María Cel- este afgreidd til aö fara til Neapels, undir stjórn John Hutchine, gerð út af eiganda hennar frá New York í því skyni. Sendir til frú Bilson í New York, eftirfylgjandi eftirlátnir munir Hen- riks Bilson, stýrimanns, sem hvarf af brigginni Maríu Celeste á síðustu ferö hennar.” Eftir undirlagi Bandaríkjastjórnar hafa fulltrúar hennar haldið spurn- um fyrir um horfnu skipshöfnina á höfnum um heim allan, en samt sem áöur hefir ekki eitt einasta skip lát- ið til sín heyra, að það hafi tekið upp skipverjana þrettán af Maríu Cel- este. Menn eru engu fróðari nú en áður um afdrif þessarar ólánssömu skipshafnar. Þó fjörutíu ár séu lið- in síðan, hefir ekkert vitnast um það hví og hvernig þeir þrettán skipverj- ar gengu af sk'ipi stráheilu og sjó- færu i bezta Iagi. Sir Arthur Conan Doyle hefir not- að þessa atburði í skáklsögu, sem hann birti í einu af tímaritunum og kallar: “Saga J. Habakukk Jeph- sons.” Hann er einn látinn komast af og segja frá hvað á dagana dreif fyrir Maríu Celeste á ferð hennar 1872. Svo sennilega er sagan úr gerði gerð af skáldinu sjálfu, að hún I

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.