Syrpa - 01.09.1913, Blaðsíða 49

Syrpa - 01.09.1913, Blaðsíða 49
47 BÝSNIN MESTA Á SJÓ hefir veriíS endurprentuS í Boston Herald 1885 í þeirri veru, aö hún færi meö sannleik tóman um þann kynlega atburÖ. Inntak sögunnar er hér tekiö upp, því þaö er fróölegt sýnishom af þvi, sem kann við að bera. Sagan lætur J. Habakukk Jephson vera lækni óhraustan aö heilsu, og því tekur hann sér far meö Maríu Celeste til aö bata sér á sjóferö. Tveir eru aðrir farþegar á skipinu, John Horton, umboösmaður eigend- anna, og Septimus Goring, kynblend- ingur frá New Orleans. Goring er langt frá því aö vera viðfeldinn mað- ur í kynning, en þó eru ekki svo mikil brögö aö því, aö nokkur geti borið sig beint upp undan því. Tveir af skipverjum láta ekki sjá sig, þeg- ar leggja á af staö, og eru þá tveir svertingjar ráönir í þeirra stað. Gor- ing á mikið viö þessa menn saman aö sælda. Eftir 10 daga siglingu frá New Ýork hverfur kona skipstjóra og barn þeirra. Daginn cftir finst skipstjóri dauður á þiljum uppi og hcldur Goring því fratn, að liann hafi framið sjálfsinorö af sorg, af því skammbyssa fanst við hönd hans. Tveimur vikum síðar sýnir Jephson Goring, þegar þeir eru aö talast við, stein i laginu eins og mannseyra. Hann hafði hann þegið að dánargjöf af svertingjakerlingu, sem sagöi að hún ætti engan að, sem hún vildi að fremur nyti hans, því liann hefði æ- tíð verið sér góður. Hún hafði sjálf, að minsta kosti, æfinlega haft hinar mestu mætur á steininum, og sania var um svertingjann við stýrið, þegar hann rak augun í steininn, því liann nærri því laut honurn eins og helgum dómi. Jephson furðaði sig á, hve mikið þeim þótti til steinsins koma, en hitt gekk þó enn þá meira fram af honum, þegar þeir komu undir Iand, og hann varð þess vísari að þeir voru komnir að Afríku- ströndum i stað Portúgals. Stýri- maður liafði liaft forsögn á skipinu frá því að skipstjóri féll frá, og hann var alveg utan við sig út af þeirri rýrð, sem þetta hlyti að varpa á sjómannskunnáttu hans. Hann staðhæföi aö verkfærin heföu veriö skekt fyrir sér; en honum gafst ekki kostur á að ganga úr skugga um hvort svo væri eða ekki, því sömu nóttina kom svertingja hópur ofan af landi, þeir sigruðu hvítu mennina og drápu þá alla nema Jephson. Hon- um gáfu þeir grið, af því hann átti steininn með eyralaginu. Þeir fóru svo aftur í land á eintrjáninguin sín- um, og því stóðu bátarnir á Maríu Celeste allir með kyrrum kjörum á sínum stað — ein af allra mestu býsnunum í þessum blöskrunarlegu atburðum. — Þegar Jephson var á Iand kominn lenti hann í ýmsar þrautir, sem ekki koma við sögunni af Mariu Celeste, og loksins koin Gor- ing honum undan. En Goring var svo fariö, að hann vildi koma hvíta mannkyninu fyrir kattarnef. Hann fann það upp að slátra allri skips- höfninni, liann skaut skipstjóra og hratt konunni og barni hennar fyr- ir borö — þetta gerði hann alt saman aðallega að gamni sínu. — Honum tókst að sigla skipinu undir Afríkustrendur, með því að skekkja mælingar áhöldin, og koma þar und- ir land, sem fyrir var þjóðflokkur, er hann ætlaði sér að ríkja yfir. Til allrar ógæfu fyrir hann, átti þjóð- flokkur sá sér skurðgoð, sem eyrað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.