Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 3

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 3
GOLLFARARNIR. Saga frá Mexikó. Eftir Gabriel Ferry. I. KAPÍTULI. Pepe svefnpurka. Við Biskayaflóann á norðanverðum Spáni er ströndin brött og tindótt ofg hrjóstug mjög. Milli San Sebastian og Bilbaó stóð höll ein afargömul uppi á brekkunum, og blasti hún við langt á sjó út. Ekki var þar annað ná- grenni en lélegir fiskimannakofar, því að fiski- mannaþorpið Elankóvi var bygt niður undan höllinni innanum klappirnar við fjöruna. Höllina átti greifaættin Medíana, og stóð hún iengi auð og mannlaus, þartileldri sonur gamla greifans, sem þá var nýdáinn, flutti þang- að árið 1808 með unga konu og barnungan son. Don Júan de Mediana var einn hinna æðstu herforingja Spánarhers, og hugði að hér mundi donnu Lúísu, konu sinni, vera einna óhættast fyrir öllum hættum á þessum styrjaldartímum, og líka fyrir ofsóknum og fjandskap af hendi Antoniós, yngra bróður síns. Það hafði komið upp hörmulegur fjandskapur milli bræðranna út af föðurarfi þeirra. Meiri hlutinn af löndum og lausafé ættarinnar hafði gengið í hendur eldra bróðurins eins og lög stóðu til þar í landi, og svall því hatrið og öfundin í hjarta Antoniós. Hafði hann að síðustu unnið þess dýran eið, að ná aftur þeim hluta eignanna, er honum fanst sér með réttu bera, og síðan farið til sjávar og horfið svo, að engar spurn- jr fóru af honum. N. Kv. IV. 1.-2. En Don Júan var kallaður til hersins aftur áður en langt leið, og varð hann að hlýða. Lét hann þar eftir konu sína og son, er þá var tvævetur. Féll honum það mjög þungt, en svo varð að vera; fal hann trúnaðarþjóni sínum einum að gæta þeirra. Hann fór burt og kom aldrei aftur. Skömmu eftir að hann kom til hersins, varð hann fyrir kúlu í stríði því, er reis af, að Spánverjar risu upp á móti ofureíli Frakka, og beið bana af. Kona hans bar það mjög illa, svo ung sein hún var, og var barnið henni eina huggunin í hörmum þessum. Elankovi er mjög afskekt þarna við Biskaya- flóann, og hefði legið mjög vel við launverzl- un, en spanska stjórnin hafði sett nokkra strand- verði þar við bæinn; hét sá Don Lúkas Des- piertó, er fyrir þeim var; var hann árvak- ur við sýslu sína, og gerði vörusmyglum oft ó- gagn mikið, og spilti atvinnu þeirra. Einn þessara strandvarða var kunnur að því að sofna, þegar hann var á verði. Annars svaf hann oftast, þegar hann gat því viðkomið, og gerði sér enga samvizku af. Hann vissi það sem var, að hann gerði skyldu sína meira en nóg fyrir þetta litla og lélega kaup, sem hann fékk, ekki sízt vegna þess, að yfirvöldunum gleymdist oftast að greiða honum það, enda urðu og félagar hans fyrir sömu skilum. Pepe svefnpurka var hann líka nefndur; hann var hár maður vexti, tnagur og sinastæltur og hálfþrítugur að aldri. Andlitið á honum var eins og marmari — svefninn hafði gert hann 1

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.