Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 16
14 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. á eftir honum; spottakorn á eftir honum riðu þeir Pedró Kúkilló og Manúel Baraja samsíða, og reyndi Baraja með öllu móti að hafa upp úr Kúkilló, hvað þeir höfðu verið að makka Spánverjinn og hann, En Kúkilló varðist allra frétta. Skamt á eftir þeim komu þjónarnir með múlana. Fyrst um sinn lá Ieiðin gegnum skóginn. En svo lentu þeir út á sólsviðinni, helberri flatneskjunni, þar sem ekkert strá fær að lifa fyrir hitanum og þurknum. Hver sá maður, sem villist vatnslaus út á öræfi þessi, þar sem himinn og jörð eru bæði jafnmiskunárlaus, er vægðarlaust dæmdur til dauða. Pað er ekki loft, heldur eldur, sem menn anda að sér; blóðið þornar upp í æðunum. Pegar hallaði að sólarlagi voru þeir enn í fjögurra mílna fjarlægð frá vatnsbólinu. Kalk- hellan í jörðinni fór nú að verða sendnari, og einstaka kjarskúfur fór að sjást við og við, og einstaka gúmmítré endrum og sinnum. Alt í einu fór brúni hesturinn hans Don Estevans að sperra éyrun og vildi ekki halda áfram. Hinir hestarnir tóku líka að ókyrrast, er þeir komu nær. »Það er ekkert hættulegt á seiði,» sagði Kúkilló, því að hans hestur hélt brátt áfram, án þess hann væri hvattur. Hinir keyrðu þá líka hesta sína sporum, og komust þá brátt að því, af hverju hestarnir létu svona. Pað lá þar dauður hestur á bak við skógarrunn. Peir félagar hefðu nú ekki látið þetta á sér festa, því að það er svo algengt á þessum öræfum að skepnur örmagnast af þorsta og deyja. En það sem vakti huga þeirra var það, að hesturinn var með söðli og beizli. Kúkilló beygði sig niður í söðlinum og skoðaði markið á hestinum. Sprunginn og skrælnaður vatnsbelgur hékk við söðulbogann, «Eg sé för mannsins í sandinum,* sagði Kúkilló, «annaðhvort hefir hann meitt sig, þeg- ar hesturinn datt niður með hann, eða hann hefir verið sjúkur og örmagna — að minsta kosti hefir hann verið valtur á fótunum. Förin stefna í sömu átt og við höldum. Pegar þeir höfðu riðið aðeins litla hríð, og myrkrið var að skella á, sáu þeir ungan mann, fátæklega búinn, liggja þar á jörðinni, og bærði hann sig ekki. Pað var orðið of dimt til þess að greina andlitsskapnað hans af hestsbaki. «Gættu að því, Benító,» sagði Don Este- van við hestamanninn, «hvort hann kynni að vera sofandi.» Benitó reið nær með hestahópinn, og ýtti við honum með lenzu sinni; en ekkert Iífsmark sá á honum. »Bíðum við! það er hægur vandi að sjá hvort hann er hrokkinn upp af,» sagði Kúkilló, hljóp af baki og Iagði höndina á brjóst hon- um. «Nei, ssnnor, ekki er hann það enn, en líklega verður þess ekki langt að bíða, ef hann verður látinn eiga sig.» »Reynið þá að bjarga honum ef þér getið, > mælti Spánverjinn, »ef það tekst, skuluð þér fá hálfa únsu.» Kúkilló hló við. »Hún er auðunnin — stattu kyr, Tordilló, og bíddu eftir mér!« sagði liar.n við hest sinn, en hann krafsaði jörðina óþolinmóðlega með fótunum, þegar þeir Don Estevan og þjónar hans riðu áfram, og hurfu þegar fyrir runnana, sem þegar voru farnir að gerast þéttari. «Vertu rólegur — bara svo litla stund!« - Hann klappaði hestinum áhálsinn. Paðvar eins og hesturinn skildi hann og stóð nú graf- kyr. Svo beygði hann sig alveg niður að pilt- inum. En óðar en hann hafði litið á þetta ná- föla andlit, hrökk hann saman og spratt upp aftur. »Hver andskotinn!» tautaði hann, og dró þegar hnífinn upp úr leggböndunum á fæti sér. Hann lyfti hendinni hægt til þess að leggja hnífnum á piltinum, en hætti þó við og leit tortryggilega í kringum sig. Myrkrið og hátíðakyrðin í eyðimörkinni höfðu áhrif á huga hans, og vöktu hjá honum hugsanir, sem bægðu honum frá þessu hryðju- verki. Hann lét hnífinn aftur á sama stað, og

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.