Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 20

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 20
18 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. ir hinumegin tjarnarinnar. Voru þeir þá sem komnir í úlfakreppu. Baraja hafði ekkert hirt um að hlýða því að spara eldsneftið, og Kúkilló hjálpaði hon- um trúlega til þess að bera á eldinn, meir en þörf var á, og hertu þeir sig því meira sem öskrin í kringum þá ágerðust. Eldsneytið varð nú líka ódrjúgt og gekk upp. en enginn þorði að fara rieitt frá, til þess að afla meiri eldi- viðar. Öskur villidýranna fór altaf vaxandi. Hest- arnir hnipruðu sig saman í þéttan hnapp og þokuðu sér nær eldinum. En svo rufu þeir hnappinn alt í einu, því þá dundi við ógur- legt ö«kur rétt að segja hjá þeim, og þutu eins og fjaðrafok sinn í hverja áttina. Hví- andi og frýsandi þeystust þeir út í myrkrið. Baraja stundi þungan, og kastaði digrum lurki í eldinn, sem þá var tekinn að daprast. Kúkilló hékk í honum eins og barn í svuntu móður sinnar. «Eg er ekki eins hræddúr við neitt á jarð- ríki eins og svona hrækvikindi,» tautaði hann. Bæði dýrin öskruðu enn ógurlega, og var eins og sigurrómur í röddinni. Bergmálið dundi við á allar hliðar, svo að það var líkast því, að heill hópur þessara blóðvarga hefði kom- ið á stefnufund þarna í eyðimörkinni. Don Estevan var staðinn upp, og hélt byssu sinni miðaðri til hæfis, en var eins ró- legur og veiðimaður, sem situr í leyni um bráð sína. Benitó setti. hönd fyrir auga, stóð álútur og horfði í kringum sig. En órólegri var hann hestanna vegna en sjálfs sín. Tíbúrsió stóð þar hjá honum uppréttur og hugrakkur. Hann hélt um skaftið á hníf sínum, svo sem hann væri til þess búinn að stökkva á móti tígrunum, ef þeir kæmu. Spánverjinn horfði á hánn, og var enn svo að sjá, sem honum brygði við. |Rétt á eftir heyrðist gullúlfur gjamma væl- • andi í nokkurri fjarlægð. «Gullúlfur!» sagði Benitó og var hissa, »Rað má undur kalla, því þær bleyður eru þó ekki annars vanar að þora að vera í nánd við tígra, nema þá helzt þegar þeir eru að rífa sundur bráð sína; þá eru þeir að mæl- ast til leifanna. — Heyrið þið til ! — þar gaul- ar annar óþverrinn hinumegin. Rað má mikið vera, ef það eru ekki einhverstaðar hér í grend- inni einhverjar þær verur á vakki, sem ekki eru hræddar við tígrana.» Hvað gefur það verið?« sögðu Kúkilló og Baraja báðir í einu, og voru æði bjúgir. «Eg ímynda mér það séu tveir veiðimenn að norðan, því að þeir einir hafa bæði hug og dug til þess að ella þessi háskalegu rán- dýr, jafnvel á nóttunni. Gullúlfagargið er sjálf- sagt merki, sem þeir g;fa hver öðrum til þess að tína ekki hver af öðrum í myrkrinu.» «Heilagur Pabló gæfi að þér segðuð satt!« stamaði Baraja, og glumraði tönnunum af hræðslu. «Hó hó, skjótið ekki, við komum til ykk- ar," sagði sterkleg rödd úti í myrkrinu með annarlegum framburði, og rétt á eftir kom maður heim að eldunum. Maður þessi var tröll að vexti, með hæru- skotið hár og sítt grátt skegg, seni náði nærri upp að augum. Augun voru grá og góðmann- leg, augabrýrnar loðnar mjög, en þar fyrir of- an tók við húfa úr tóuskinni. Hann var klæddur blárri skyrtu og treyju yfir utan gerðri úr ullarflóka, og í leðurbrók- um með belti uni mjaðmir og var í beltinu langur veiðihnífur. Á fótum bar hann þung stígvél, járnslegin. Um aðra öxl honum hékk stórt vísundahorn, fagurlega fægt, fult af púðri, og leðurpungur, líklega með blýkúlum. í hend- inni hélt hatin á byssu með löngu, rifluðu hlaupi. Hann stóð við að eins og leit yfir hópinn og mælti: «Fjandinn hafi eldinn ykkar, nú hafið þið fælt fyrir mér tvo þá fallegustu flekkutígra, sem nokkurn tíma hafa öskrað í þessari eyði- mörku. Eg vona að þið drepið eldinn!« «A? drepa eldinn?» æptu þjónarnir. »Já, þið eruð þó líklega ekki hræddir við tvo tígurhvolpa,* sagði veiðimaðurinn hlæjandi. J

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.