Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Page 27

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Page 27
PRESTSSETRIÐ. 25 í garðinn, stóð ungi maðurinn á fætur, afsak- aði ókurteisina við konuna í aftara sætinu, og sneri sér alveg fram i vagninum, og horfði fram hjá ökumanninum. »En hve hér er yndislegtN hrópaði hann upp yfir sig. Prestssetrið stóð á fremstu hæðinni næst sjónum, svo að þar blasti við sjóndeildar- hringurinn víður og blár, er þau komu inn í garðinn. Aldraði maðurinn í aftursætinu rétti sig of- urlítið upp, til þess að sjá út úr vagninum og mælti: «Já, hér er mjög fagurt útsýni; það gleð- ur mig, að yður geðjast að okkar einkenni- lega landslagi, herra Lintzow.» Þá varð unga manninum Iitið á Rebekku; hann tók í taumana hjá ökumanninum og sagði. »Hér skulum við halda kyrru fyrir.» Rebekka leit undan. «Sussu, sussu,» sagði frúin brosandi, «það nær engri átt, þetta er prestssetrið. «Gerir ekkert,« sagði ungi maðurinn glað- ur í bragði, og hljóp niður úr vagninum. «Er það ekki satt? eigum við ekki að hvíla hérna,» sagði hann við þá, sem sátu í aftari vögnunum. Þá stóð upp maðurinn í aftara sætinu, og sagði alvarlegur: «Nei, vinir minir! þetta nær engri átt; við getum alls ekki sezt hér að hjá prestinum, sem við þekkjutn ekki neitt. Pað er ekki nema tíu mmútna ferð til hreppstjór- ans, og hann er því vanur, að taka á móti gestum. Hann ætlaði að fara að gefa skipun um að halda áfram, þegar presturinn kom út í dyrn- ar og heilsaði vingjarnlega. Hann þekti Hart- vík verzlunarfulltrúa í sjón, og vissi að hann var voldugasti höfðinginn í borginni. Ef þið viljið láta svo lítið, að standa hérna við, þá er mér það mikil ánægja,» sagði prest- urinn, «og hvað útsýnið snertir,*------ «Nei, kæri herra prestur,» þér 'eruð alt of góður og eftirlátssamur, við þorum alls ekki að taka þessu góða og vinsamlega boði yðar, og við verðum að biðja yður innilega afsökunar á hegðun þessa unga fólks, sem með okkur er,» greip frúin fram í, hálfráðalaus, þegar hún sá að yngsti sonur hennar, sem verið hafði í aftasta vagninum, var farinn að leika sér við Ansgaríus litla. «EgfulIvissa yður um það, frú,« sagði prest- urinn brosandi, «að bæði mér og dóttur minni þykir mjög vænt um það að fá svona skemti- lega heimsókn í fámenninu.» Lintzow opnaði vagnhurðina og hneigði sig hátíðlega, Verzlunarfulltrúinn og kona hans litu hvort á annað, en presturinn gekk nær og endur- nýjaði boðið, og svo varð það úr, að kon- súlshjónin létu undan, og stigu út úr vagnin- um eins og hálf nauðug en þó |brosandi, og lofuðu prestinum að leiða sig inn í dagstof- una, sem var stór og rúmgóð. Þau hjónin fóru nú enn að afsaka átroðn- inginn, og kynna prestinum og dóttur hans fólkið í hópnum . . . Það voru börn þeirra og ýmsir ungir vinir þeirra og vinstúlkur, en aðallega var til ferðarinnar stofnað fyrir herra Lintzow, vin elzta sonar hjónanna, sem var hjá þeim gestur um tíma. «Þetta er Rebekka dóttir m:'n,» sagði prest- urinn, og hún mun reyna að gera sér alt far um að — «Nei, nú skal eg segja yður eitt, herra prestur, tók konsúlsfrúin, glaðlega fram í, og var heldur en ekki óðamála. »Þetta fer nú að verða úr öllu hófi. Þó að synir mínir og herra Lintzow, sem er alveg^óviðráðanlegur órabelg- ur, hafi neytt okkur til þess að gera ykkur ónæði, og fara inn í hús yðar, þá ætla eg nú að taka til minna ráða. Eg ætla sjálf að standa fyrir beina — hana nú, — farið þið strákar og sækið þið böglana, sem í vögnunum eru; og, elsku barnið mitt, þú átt nú að leika þér með unga fólkinu, eg skal sjá um matreiðsl- una, því er eg vönust,» sagði hún við Re- bekku, um leið og hún leit á hana og klapp- aði á kinnina á henni, og einlægnin skein úr gráu augununi hennar. 4

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.