Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 19

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 19
GULLFARARNIR. 17 kona hans lá banaleguna, sagði hún Tíbúrsíó frá þessu, fékk honum uppdráttinn og varþað föðurarfur hans. Pá lagði hún honum ríkt á hjarta að leita uppi morðingja Arellanoss, því hún þóttist vita til vissu að félagi hans hefði vegið hann, og draga hatin fyrir dóm, En óð- ara en því yrði fram komið, þurfti Tibúrsió að vinna sér inn nokkurt fé, og ætlaði hann að gera það í hasíendunni; þar hafði hann líka stundum verið áður um tíma við hirðara- störf, og getið sér gott orð. Undireins og þeir voru komnir, fór Kúkilló og kallaði Don Estevan á einmæli, og gat þess að Tíbúrsió væri sonur, eða öllu heldur þó fóstursonur Arellanoss, og gæti stafað hætta af honum fyrir launmál þeirra, ef hann skyldi eitthvað vita um gulldalinn; þótti Kúkilló ráð- legra að sjá ráð fyrir pilti þessum í tíma, því allur væri varinn góður Don Estevan eyddi því, en spurðist mjög fyrir, hvaðan Tibúrsió mundi vera, en Kúkilló hélt liann mundi hafa komið með þeim hjónum frá Evrópu, og lík- •ega vera fæddur á Spáni. Alt þetta oili Don Estevan áhyggju mikillar, og ekki gat hann að sér gert, nema horfa mjög á Tibúrsíó um kvöldið. IV. KAPÍTULI. Tígraveiðararnir. Tjörn þessi var á löngu svæði eini stað- urinn, þar sem vatn var að fá, á meðan á þurkatímanum stóð. Hefir þar víst undir niðri verið uppgönguauga, sem fylti tjörn- ina; var hún á botninum á dæld einni lít- illi, og var hér um bil tíu feta há brekka nið- ur að vatninu á allar hliðar; var þéttskipað trjám þar í kring, er fléttuðu greinum saman, og mynduðu skuggsæla laufskála með dæld- inni, og gras mikið og gott var þar í kring. Gróðurblettur þessi og afkymi í eyðimörk- inni var sannur fagnaðarstaður ferðamönnum til þess að á þar, hvíla sig og hesta sína. Þangað komu og oft veiðimenn til þess að sitja þar um hirti og tígra og önnur dýr, .gem þorstinn knúði til að leita sér drykkjarí vatns- bóli þessu úr öllum áttum. Hitanum linti við sólarlagið, og var nóttin svo á eftir eins og vant er í heitu löndunum. Eldarnir brunnu því bæði til þess að draga úr næturkulinu, steikja við þá kvöldverð — þjónarnir voru einmitt að “steikja sér hálft sauðarfall — og verja villidýrum að leita á þá, ef þau kynnu að slæðastað vatnsbólinu um nóttína. Don Estevan lá við sérstakan eld, kipp- korn frá hinum; lá hann þar á bóli úr húð- um og ábreiðum og var í þungum hugsunum. Hann starði inn í eldinn, og studdi hönd undir kinn. Stundum horfði hann á Tíbúr- sió, sem hélt til við stóra eldinn hjá þeim Kúkilló og Baraja. Hestarnir voru þar nálægt, og héldu sér í grend við bjölluhryssuna. Peir teygðu háls- ana, eða bitu grasið, og glampaði eldurinn í augum þeirra. En svo fóru þeir að fnasa og viðra, hnöppuðu sig saman og létu ó- rólega, eins og þeir fyndu á sér, að hætta væri í nánd. «Hér er víst einhverstaðar í nánd tígur á vakki», sagði Benitó. Og þar var hann sann- spár, því að litlu síðar heyrðist hátt'ýlfur skamt frá vatnsbólinu. «Takið til vopna», kallaði Don Estevan og þreif byssu sína. «Parf ekki til, sennor, þetta er meira en nóg,» svaraði Benitó hlæjandi, og kastaði fangi sínu af skrælnuðum viðargreinum á eldinn. Bálaðist þá eldurinn í háaloft, svo að birtu sló langt út til allra hliða; rétt á eftir heyrðist ýlfrið nokkru fjær. Pað var eins og létti fargi af öllum. Bar- aja einn hélt áfram að kynda eldinn af kappi og var auðsjáanlega allsmeykur. Hann marg- spurði Benitó um það, hvað tígrar væru hættu- legir, þangað til hann varð að skipa honum að þegja. »Ef þér haldið svona áfram að bruðla út eldiviðnum», sagði hann, «þá verður þetta bráðum búið, sem er til.» Eftir nokkra stund fór tígurinn aftur að öskra stutt frá vatnsbólinu, og annar tók und- 3

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.