Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 10
8 NÝJAR KVÖLDVÖVUR. »Hvern fjandann ertu þarna að burðast með Bois-Róse?» spurði skipsforinginn steinhissa. ^Rað er barn, sem eg fann hálfdautt af hungri og kulda í báti, sem var að rekast fyr- ir vindi og báru skamt frá landi. Það var í fanginu á alblóðugu konulíki, og eg ætlaði ekki að geta náð því úr faðmi líksins. Og svo ætluðu þessir bannsettir Spánverjar að sálga oss með skotum, einkum einn langur drjóli — lesarinn kannast víst við Pepe — sem mið- aði svo fjandi klaufalega, en Iét hvert skotið reka annað .... En ef eg hitti hann seinna . . . já, sleppum því.« «Og hvað ætlarðu að gera við þennan aum- ingja? < »Eg ætla að reyna að hafa hann hjá mér, auðvitað, þangað til friður kemst á, og eg get komið hingað til þess að leita mér upp- lýsinga um barnið.* Og svo fór hann ofan með barnið, klæddi það úr sjóvotum fötunum, vafði það í hlýjum ábreiðum og kom mat smátt og smátt ofan í það. Og honum vanst vel á. Drengurinn hrest- ist brátt, og þótt hann gréti fyrst, huggaðist hann skjótt við blíðmæli fóstra síns, og urðu þeir skjótí svo góðir vinir, að þeir máttu hvor- ugur af öðrum sjá. Og svo liðu stundir fram. Sveinninn óx og dafnaði og Bois-Róse var honum bæði fað- ir og móðir. En svo liðu tvö ár, að eigi komst friður á, og franska skipið náði aldrei. færi á að koma að landi á Spáni. Hásetinn, sem var fæddur í Kanada, nefndi drenginn Fabian, því að það nafn hafði hann fundið saumað í föt hans. Svona Iifðu þeir saman og skildu aldrei Bois-Róse gerði sér ótal fagrar hugsjónir um framtíðarferil Fabíans. En hann gætti þess eigi um leið, hvað sjómannalífið er hættnlegt og hamingjan fallvölt. Einn morgun elti enskt briggskip vikinga- snekkjuna; var það helmingi stærra en hún og örskreitt vel, svo hana dró eigi undan á siglingu, og sló því í bardaga. Skipin skut- ust á af mikilli áfergi og fór svo að lokum, sem vonlegt var, að víkingarnir báru lægra hlut, og urðu að gefast upp, því að skipið var að því komið að sökkva. Bois-Róse hafði látið fóstra sinn vera niðri í skipinu í sérstakri kompu á meðan orustan stóð. En nú kom hann ofan, svartur af púður- reyk, og tók hann og bar hann upp á þiljur. Par stóð hann í miðjum hergnýnum, innan um brak og bresti, brotin möstur og dauðra manna búka, en alt var löðrandi í blóði. Par vafði hann drenginn að brjósti sér og hlífði honum með líkama sínum. Drengurinn horfði forviða og skelkaður í kringum sig, varð hræddur og fór að hágráta. Hann grúfði sig upp að fóstra sínum, en hann reyndi að sefa drenginu með kjassi og blíð- mælum. En það var til einkis. »Beygðu hné þín, barn mitt«, sagði háset- inn með hátíðlegri röddu, «og taktu eftir því, sem hér fer fram.« »Æ, eg er svo hræddur við blóðið og há- vaðann hérna,« sagði drengurinn kjökrandi. »Gleymdu því aldrei, «sagði hásetinn enn- fremur, „að háseti nokkur, sem elskaði þig meira en sitt eigið líf, hefir látið þig falla hér á hné, og sagt við þig: Beyg kné þín, barn mitt, og biddu fyrir henni móður þinni . . » í sama bili hitti kúla hásetann; hann hneig niður; blóðið gaus yfir Fabian, drengurinn rak upp sárt hljóð. Kanadarinn (hásetinn) þrýsti honum enn upp að sér, og sagði svo lágt að drengurinn heyrði það varla: «........móður þinni, sem egfanndauða við hliðina á þér.« Svo misti hann meðvitundina. Pegar hann raknaði við aftur, var hann niðri í fúlli skips- kompu, og kvaldist af brunaþorsta. Hann kallaði á Fabían með veikri rödd — en eng- inn gegndi. Fabian var þar hvergi. Hann varð þar að gráta sinn týnda son í fanga- myrkrunum. Fám dögum eftir að greifafrúin af Medíana hvarf, fundu fiskimenn úr Elankóvi lík hennar rekið í fjörunni.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.