Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 47

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 47
BÓKMENTIR. 45 Hulda gæti fengið góð yrkisefni við sitt hæfi úr þjóðsögunum, farið vel með þau og farið fram á þeim. Pær eru góður skóli hverjuin þeim, sem reynir að gera meira en lesa þær og ala við þær listagáfu sína. Aftur er Bryn- hildur Buðladóttir ekki hennar meðfæri, enda er það ekki smámennum hent að taka til með- ferðar allan þann eld ástar og haíurs, sem brennur í brjósti hennar. Hún hefði verið samboðin Shakespeare eða slíkum mönnum. En þótt eg hafi þannig margt við bókina að athuga, fagna eg hennrsamt, því að frá henni berast mér matgir hljómar, sem gefa mér beztu vtjnir um skærar raddir síðar. Eg vona að fá Ijóðsöguna hennar um Hlinik kóngsson og fleiri Ijóð úr sömu námu, og treysti þeirri von. En hún á líka til fleiri undurfagrar radd- ir; eg skal aðeins benda á hið yndisfagra kvæði sem hún sendir bók sína með út í heiminn. Það kvæði felur í sér alia bókina — þar birt- ast brestir hennar og kostir, og þar játar hún þá sjálf. En hún vill ekki liggja á sínu. Hún biður um goðsvör — þráir þau, en hefir ekki fengið þau. Það er vonandi að hún fái þau. Þegar andinn þroskast og skarpleikinn og dóm- greindin vex, þá fær hún þau vonandi; en hún fær þau aldrei utan að sér — hún fær þaú innan að úr djúpi sinnar eigin sálar, því eg efast ekki um, að þar er nógur auður fyrir til þess. En þangað til vildi hún samt hlýða æskudís sinni og endar því þannig: Hver lítill geisli ljós frá himni ber, að lauf og blómstur jarðar fagna megi. Svo vildi’ eg það, sem lífið gaf mér, leiða í Ijósum geisla út á djúpið breiða. Og við þökkum henni fyrir að hún gerði það, þótt við hefðum kosið sumt af því betra en það er, Dagsbrún heitir söngva- og kvæðakver eftir Jónas Guðlaugsson, kornungan mann í Reykjavík. Það kom og út í 'sumar. Hann befir áður gefið út kvæði, bæði V o r b I ó m og kvæði í T v í s t i r n i. Rað eru víða lagleg tilþrif í kvæðum þessttm, en ærið eru þau hljómlík kvæðum sumra annara, setn orí hafa og gefið út á undan, t. d. Guðmundar Guð- mundssonar. En flest af ljóðunum er iítt þroskað, og stundum æðilítið um verulegan, skáldlegan smekk. »Pjóðskáldið«, «Apis« og »Dalbúar eru kvæði, sem helzt hefðu átt að vera kyr í skúffunni heima, og óþverratalið um bændurna í síðasta kvæðinu eru alls ó- viðurkvæmileg orð; það vita allir, sem vilja kannast við það, sem satt er og rétt, að ís- lenzku dalabændurnir eru kjarni íslenzku þjóð- arinnar, og flest vorra beztu rnanna er af þeirra bergi brotið — og skáldið sjálft. Honum hætt- ir svo mikið við að vonskast í kvæðum sín- uin og líta með skáldhelgaðri fyrirlitningu of- an á alla aðra en sjálfan sig, (»þið spyrjið«, «til kunningjanna«), að það verður skoplegt; annað eins og það er ekki innan að frá auð- ugu hjarta, það erti «merkilegheit» og ekkert annað. En óbifandi trú hefir Jónas á sjálfuin sér, og köllun sinni sem skáldi, og það er mikils virðandi, þegar hann stillist og lærir að gæta sín og getur hafið sig upp yfir mykju- flugur og úrelta daladjöfla. Og það eru til í honum ósvikið efni til að verða skáld, ef hann vill temja sig sjálfur; það sýnir »Vorið kemur«, »Rósir«, »Eg veit«, ástavísurnar sumar uin Rórborgu o. fl. »Sönglok« heitir síðasta kvæð- ið hans; það ólgar af sjálfstrausti, að þessi byrjun hans verði aðeins »dagsbrún yfir aust- urleið« er »mun eitt sinn verða að dag» (við verðum að fyrirgefa málvilluna!) Eg vil óska skáldinu þess, að því verði að von sinni, því að hann getur það vel, en til þess þarf hann að ganga í gegnum þann skóla, sem honum verður líklega örðugast, eftir þessu kveri að dæma: að tíma að »krítisera« eða finna að við sjálfan sig. Þá gæti vel skeð hann kæmist á skáldalaun með tímanum — og ættu þau skilin. Þriðja kvæðabókin, sem eg hefi milli handa er eftir áttræðan, útslitinn, fátækan bónda norð- ur í Mývatnssveit: Ljóðmœli eftir Jón Hinriks- son. Kvæðabók þessi kveður við annan tón en hinar, sem eg hefi verið að tala um. Það er flest ort í hinum eldra stíl, og það er ó- svikið, íslenzkt alþýðulag á kvæðunt hans. — v .

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.