Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 31

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 31
PRESTSSETRIÐ. 29 En meðan verið var að búaniður, og fóik- ið var að setjast í vagnana og alt var í upp- námi, læddist Rebekka burtu. Hún fór fyrst inn í húsið, og svo yfir garðinn og niður að Kon- ungshaugi. Húu settist þar niður undir trján- um hjá fjólunum, og fór að átta sig á öllu því, sem hún hafði séð og heyrt um daginn. »En hvar eru nú fjólurnar, herra Lintzow,« sagði Friðrika, þegar hún var sezt upp í vagninn. Hann var alstaðar að leita að Rebekku, og var eins og hálfgert utan við sig, og sagði að það myndi vera orðið of seint. En svo var eins og honum hefði húgkvæmst eitthvað nýtt, svo að hann sneri sér að frúnni og mælti: »Pér fyrirgefið, frú Hartvík, að eg skýzt burtu sem snöggvast til þess að sækja ofur- lítinn blómskúf handa ungfrú Friðriku.« Alt í einu heyrði Rebekka hratt fótatak, og henni fanst, að það gæti ekki verið neinn ann- ar en Lintzow, sem kæmi. •O, þér eruð þá hérna, ungfrú Rebekka," mælti hann, »eg kom til þess að sækja fjól- urnar.i Hún sneri sér undan til hálfs og fór að tína fjólur. »Ætli þér að tína fjólur handa mér, ung- frú Rebekka?« sagði hann hikandi. »Eiga þær ekki að vera handa ungfrú Frið- riku?» spurði hún. «Æi nei! tíni þér þær handa mér,« sagði hann biðjandi, og féll á bæði hnéframmi fyrir henni. Málrómurinn varð aftur raunalegur, það var nærri því eins og barn væri að gártbiðja móður sína. Pá rétti hún honum fjólurnar án þess að líta upp. Hann vafði handleggjunum utan um hana, og hélt henni fast upp að sér. Hún reyndi ekki til þess að slíta sig af honum; hún lét augun aftur, og henni varð þungt um andardráttinn. Pá kysti hann hana — einu sinni — mörg- um sinnum — á augun og á munninn, þess á milli nefndi hann nafn hennar, ogsagði ein- hver orð, sem varla skyldust, og svo kysti hann hana aftur. Pað var kallað heiman úr garðinum, og hann slepti henni og hljóp eins og fætur tog- uðu niður af hauginum. Hestarnir börðu niður hófunum, og Lintzow flýtti sér að stökkva upp í vagninn; en þegar hann Iét aftur vagnhurðina, tókst svo klaufa- lega til fyrir honum, að hann misti blómvönd- inn, og hafði ekki eftir nema ema fjólu. »Pað er líklega ekki til ueins að bjóða yður þessa einu, ungfrú Friðrika?« sagði hann. »Nei, þakka yður fyrir; það er bezt að þér eigið hana sjálfur í minningu um það, hve yður fórst fimlega,« svaraði hún með þvkkju. »Já, það er alveg rétt, sem þér segið, og eg ætla að breyta eftir þvf,« svaraði Lintzow með mestu stillingu. Lintzow var á dansleiknum um nóttina. Pegar hann vaknaði morguninn eftir, og fór að klæða sig í hversdagsfötin, fann hann visna fjólu í eintú hneppslunni. Hann kleip blóm- hnappinn af með nöglinni, og dró svo legg- inn út hinumegin. «Já, það var annars alvegsatt,» sagði hann við sjálfan sig, og leit brosandi í spegilinn; »eg var nærri því búinn að gleyma henni* Svo fór hann burtu, alfarinn, seinni partinn um daginn, og þá var hann alveg búinn að gleyma henni. * * * * * * * * * Sumarið kom með hlýja daga og iangar, bjartar nætur. Reykjarskýin eftir gufuskipin lágu eins og svartar rákir yfir hafinu, og seglskipin, liðu á- fram í hægðum sínum með vindlausum voð- um, og þurftu nærri því heilan dag til þess að komast úr augsýn. Pað leið nokkur tími, áður presturinn tók eftir nokkurri breytingu á dóttur sinni, en smám saman fór hann að veita því eftirtekt, að hún varð æ fölari í útliti, og vildi vera sem mest ein í herbergi sínu. Hún kom mjög sjaldan

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.